Þorsteinn Már Baldvinsson, einn stærsti eigandi útgerðarfyrirtækisins Samherja og fyrrverandi forstjóri fyrirtækisins, hefur sagt af sér sem stjórnarformaður útgerðarfélagsins Framherja í Færeyjum. Þá mun hann einnig fara úr stjórn fyrirtækisins.
Frá þessu er greint á færeyska miðlinum in.fo en Samherji fer með fjórðungshlut í Framherja. Útgerðarfélagið er eitt það stærsta í Færeyjum.
Vísir greindi frá því um helgina að ekki hefði verið tekin ákvörðun um það hvort Þorsteinn Már myndi segja af sér sem stjórnarformaður Framherja á meðan rannsókn á starfsháttum Samherja í Namibíu stendur yfir.
Nú hefur sú ákvörðun verið tekin og kemur Árni Absalonsen inn í stjórn Samherja fyrir Þorstein Má. Þá tekur Elisbeth D. Eldevig Olsen við sem stjórnarformaður.
Síðastliðinn fimmtudag steig Þorsteinn Már tímabundið til hliðar sem forstjóri Samherja.
Það gerði hann í kjölfar umfjöllunar Kveiks og Stundarinnar um viðskiptahætti fyrirtækisins í Namibíu í Afríku þar sem greint var frá mútugreiðslum Samherja til namibískra embættismanna og gruns um skattaundanskot og peningaþvætti fyrirtækisins.
Björgólfur Jóhannsson tók við starfi forstjóra Samherja.
Viðskipti innlent
Þorsteinn Már segir af sér sem stjórnarformaður Framherja
Tengdar fréttir
Sagði umfjöllun „árás á starfsmenn Samherja“
Þorsteinn Már Baldvinsson, fráfarandi forstjóri Samherja, stappaði stálinu í starfsfólk félagsins á fundi í fiskvinnslu félagsins á Dalvík á fimmtudaginn.
Bankareikningar tveggja „hákarla“ frystir
Frá þessu er greint í prentútgáfu dagblaðsins The Namibian sem kom út í morgun.
Sólveig Anna telur framferði Þorsteins Más lágkúrulegt
Tekist var á um ýmsa fleti Samherjamálsins í Silfrinu í dag.