Lífið

Mikil tenging hjá Vilborgu Örnu og Javi Valiño á æfingu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vilborg Arna og Javi stilltu sér upp fyrir myndatöku á miðri æfingu.
Vilborg Arna og Javi stilltu sér upp fyrir myndatöku á miðri æfingu. vísir/vilhelm
Skemmtiþátturinn Allir geta dansað hefur göngu sína á Stöð 2 á nýjan leik þann 29. nóvember.

Tíu pör taka þátt og stendur eitt par eftir sem sigurvegari í lok janúar á næsta ári.

Næstu fimm daga verða öll pörin í Allir geta dansað kynnt til leiks og verður byrjað á þeim Vilborgu og Javi.

Vilborg Arna Gissuradóttir hefur farið á toppinn á hæstu fjöllum heims, farið á Suðurpólinn og er mikið hörkutól. Hún mun dansa við Javi Fernández Valiño sem sló í gegn í fyrstu seríunni. Þá var Javi með Ebbu Guðnýju Guðmundsdóttir í liði og fóru þau langt í keppninni. Javi komst alla leið í úrslitaþáttinn í maí 2018.

„Ég er enginn dansari og er lítið úti að skemmta mér út af íþróttalífinu og því fæ ég fá tækifæri til að dansa,“ sagði Vilborg í samtali við Vísi þegar stjörnurnar voru kynntar til leiks á Vísi í september.

Dómarar í ár verða þeir sömu og í fyrstu seríunni:

• Selma Björnsdóttir

• Karen Reeve

• Jóhann Gunnar Arnarson

Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Vísis leit við á æfingu hjá Vilborgu og Javi í World Class í vikunni og fangaði stemninguna hjá dansparinu.

Þau eru komin með pósurnar á hreint.vísir/vilhelm
Hreyfingarnar virðast vera í lagi.vísir/vilhelm

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.