Eva Laufey Kjaran gaf á dögunum út bókina Í eldhúsi Evu. Hér deilir hún einni uppskrift úr bókinni með lesendum Vísis, Beef Wellington. Við gefum henni orðið.
Jólamaturinn minn í öllu sinni veldi. Dúnmjúk og safarík nautalund með sveppafyllingu, vafin í hráskinku og pökkuð inn í gómsætt smjördeig. Steikin stendur algjörlega ein og sér en hún er æðisleg með góðri sósu og ferskum aspas. Algjörlega fullkomin máltíð!
Sveppamauk
- 1 box sveppir, um 250 g
- 2 portóbellósveppir
- 2 stilkar sellerí
- 1 msk smátt söxuð steinselja
- ½ laukur
- 1 dl brauðrasp
- 1 msk smjör
Nautalund
- 800 g nautalund (fullhreinsuð)
- 1 plata smjördeig
- 10 sneiðar af hráskinku
- Salt og pipar
- Góð ólífuolía
- 2 eggjarauður
Aðferð:
- Setjið öll hráefnin sem eiga að fara í sveppamaukið fyrir utan brauðrasp í matvinnsluvél og maukið fínt.
- Hitið smjör á pönnu og steikið í smá stund, þerrið sveppablönduna svolítið með eldhúspappír og því næst fer brauðraspið saman við.
- Setjið fyllinguna í skál og inn í kæli í lágmark hálftíma.
- Hitið ólífuolíu á pönnu og steikið nautalundina á öllum hliðum og brúnið, kryddið til með salti og pipar.
- Leggið plastfilmu á borðið sem er um það bil 40x40cm, athugið þið þurfið nokkrar filmur til þess að móta þessa stærð.
- Raðið hráskinkunni á plastfilmuna, smyrjið sveppafyllinguna ofan á skinkuna og því næst fer nautalundin yfir og þið hjúpið lundina með því að leggja plastfilmuna varlega yfir nautalundina og rúlla svo plastinu mjög fast utan um hana.
- Setjið rúlluna í ísskáp í lágmark klukkustund (ég er oft með hana í 4 – 5klst)
- Fletjið smjördeigið út með kefli þannig að smjördeigið passi utan um lundina, sækið lundina í ísskápnum og náið henni úr plastfilmunni. Setjið nautalundina fyrir miðju á smjördeiginu og hjúpið lundina með smjördeiginu. (athugið að samskeytin séu undir rúllunni)
- Lokið smjördeiginu í báða enda og setjið á pappírsklædda ofnplötu.
- Penslið rúlluna með eggjarauðu og skerið endilega rendur í deigið eða útbúið annað mynstur að vild.
- Saltið deigið og setjið inn í ofn við 200°C í 25-30 mínútur.
Leyfið kjötinu að hvíla í lágmark tíu mínútur áður en þið berið það fram.