Steingrímur tekur við fjármálum Samherja í Hollandi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. desember 2019 14:55 Steingrímur Halldór Pétursson hætti hjá Högum eftir fjóra mánuði í starfi sem framkvæmdastjóri fjármála og viðskiptaþróunar. Hagar
Steingrímur H. Pétursson hefur verið ráðinn fjármálastjóri á skrifstofu Samherja í Hollandi. Svo segir í tilkynningu frá Samherja. Greint var frá því á dögunum að Steingrímur hefði óskað eftir því að hætta sem framkvæmdastjóri fjármála og viðskiptaþróunar Haga eftir aðeins fjóra mánuði í starfi. Nú er komið í ljós hvers vegna. Fram kemur í tilkynningu frá Samherja að Steingrímur hafi fjölþætta reynslu úr íslensku viðskiptalífi og búi yfir mikilli sérþekkingu á sviði fjármála. Áður en Steingrímur réð sig til Haga í september síðastliðnum var hann framkvæmdastjóri fjármálasviðs Olís um þriggja ára skeið. Steingrímur hefur einnig gegnt stöðu framkvæmdastjóra hjá Eimskip, Sandblæstri og Málmhúðun og Fjárfestingarfélaginu Sjöfn en hóf starfsferil sinn að loknu háskólanámi hjá KPMG Endurskoðun á Akureyri þar sem hann vann í fjögur ár. Steingrímur er með meistaragráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri og B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Hann er kvæntur Lindu Björk Sævarsdóttur og eiga þau þrjú börn. Samherji býður Steingrím hjartanlega velkominn til starfa
Sjávarútvegur Vistaskipti Mest lesið „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Viðskipti innlent Áföstu tapparnir stóðust ekki gæðapróf Neytendur Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Viðskipti erlent Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Viðskipti erlent Leiguverð heldur áfram að hækka Viðskipti innlent „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Viðskipti innlent Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Samstarf Dýr smjörvi á Egilsstöðum vekur mikla athygli Neytendur Ólöglegt bleikiefni í hveitinu Neytendur Leggja upp laupana í Lundúnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Leiguverð heldur áfram að hækka „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Leggja upp laupana í Lundúnum Annað tilboð borist í Skagann 3X Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Skúli í Subway reisir glæsihótel við Jökulsárlón Búið að bjóða í Skagann 3X Brutu samkeppnislög með ótímabærri markaðssetningu Harpa vill létta lund veðurbugaðra höfuðborgarbúa Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Berglind gengin í eigendahópinn Staðan ekki jafnsvört og sumir vilji meina Bjartmar ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Íbúar Grafarholts geta tekið til matar síns á ný „Við erum bara að reyna að lifa af“ „Komin upp í þak“ í verðlagningu Nýir eigendur taka við Melabúðinni Festi festi kaup á Lyfju Spá aukinni verðbólgu HS Orka tryggir sér fjörutíu milljarða króna Mikil fjölgun tengifarþega en mun færri ferðast til Íslands Fleiri farþegar en minni sætanýting Mikill áhugi á þrotabúi Skagans 3X Formaður atvinnuveganefndar á hlut í félaginu sem KS keypti Landsbankinn til ráðgjafar vegna sölu Íslandsbanka KS hafi fest kaup á Kjarnafæði Norðlenska Sáraroðið frá Ísafirði notað til bjargar brenndum börnum í Afganistan Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Úr boltanum í tryggingarnar Sjá meira