Lífið

Berglind giftist sjálfri sér á Ítalíu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Berglind giftist sjálfri sér á fallegum stað á Ítalíu.
Berglind giftist sjálfri sér á fallegum stað á Ítalíu.
Berglind Guðmundsdóttir fór ein í þriggja vikna ferð til Ítalíu þar sem hún keypti sér brúðarkjól, hring og giftist sjálfri sér.

Berglind er fráskilin fjögurra barna móðir sem er óhemju sjálfstæð og fer ekki troðnar slóðir.

„Ég hafði ekkert planað þetta sumar. Börnin mín voru að fara til pabba síns í mánuð og ég er eitthvað í tölvunni að grúska á einhverjum ferðavef. Ég slæ inn að ég sé til í að fara hvert sem er og þá kemur upp þessi borg á Ítalíu, Catania,“ segir Berglind en borgin er á Sikiley.

„Öll ferðin var í raun ævintýraferð,“ segir Berglind sem rifjaði upp þegar hún var komin út þegar einn drengurinn hennar spurði hvort hún myndi einhver tímann gifta sig aftur og þá hafði hún svarað:

„Mögulega giftist ég bara sjálfri mér.“

„Það var eitthvað við þennan stað sem var svo brúðkaupslegt. Ég ræddi það eitthvað hvort ég ætti að gera þetta en svo hugsaði ég ekkert um það meir,“ segir Berglind.

Þegar hún var á ströndinni síðasta daginn á eyjunni fer hún á ströndina og fékk þá hugmynd að láta til skara skríða.

„Ég hugsaði með mér ef ég ætlaði að gera þetta, yrði það að vera gert almennilega,“ segir Berlgind sem fjárfesti í kjól og hring og giftist sjálfri sér. Vala Matt hitti þessa ævintýrakonu í Íslandi í dag á Stöð 2 í gær og fékk að heyra frá þessu sérstaka brúðkaupi Berglindar.

Vala fór einnig og talaði við ritstjórann Steingerði Steinarsdóttur á Vikunni og Mannlífi en Steingerður vakti mikla athygli þegar hún skrifaði greinina Einhleyp og hamingjusöm.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.