Það fór eflaust ekki fram hjá neinum sem skoðaði íslenska miðla um helgina að klippa úr spjallþætti Gumma Ben frá því á föstudagskvöldið fór á flug.
Þar mátti sjá Sóla Hólm bregða sér í hlutverk Rikka G í þáttunum Rikki fer til Ameríku en að þessu sinni fór Rikki einfaldlega út úr bænum.
Vísis-klippan sló rækilega í gegn og kom út seinni klippa fyrr í dag. Sóli Hólm mætti í Brennsluna í morgun og ræddu málið af yfirvegun.
„Rikki er stórmaður og tekur þessu,“ segir Sóli.
„Ég ætlaði að setja upp einhvern leikþátt og þykjast vera eitthvað pirraður og reiður en ég get það bara ekki, þetta var svo fyndið,“ segir Rikki.
Hér að neðan má hlusta á samtal þeirra tveggja frá því í morgun.
Hér að neðan má sjá fyrsta atriðið þegar Rikki G fór á hestbak.
Því næst fékk Rikki að smakka kleinu í Hveragerði.
Sóli og Rikki G grófu stríðsöxina
Tengdar fréttir
Friðrik Dór tók lagið í beinni hjá Gumma Ben
Nýi skemmtiþátturinn Föstudagskvöld með Gumma Ben hóf göngu sína á Stöð 2 í gærkvöldi.
Sóli sem Rikki G agndofa yfir íslenskri kleinu og fékk að prófa traktor
Á föstudagskvöldið fór af stað nýr spjallþáttur á Stöð 2 sem ber heitið Föstudagskvöld með Gumma Ben.
Sóli Hólm sem Rikki G sturlast þegar hann á að fara á bak
Í kvöld fór af stað nýr spjallþáttur á Stöð 2 sem ber heitið Föstudagskvöld með Gumma Ben.