Lífið

Loreen, Lordi, Logan og nú Hatari

Kolbeinn Tumi Daðason í Tel Aviv skrifar
Loreen hin sænska fagnar sigri árið 2012 í Aserbaídsjan.
Loreen hin sænska fagnar sigri árið 2012 í Aserbaídsjan. Getty/Pablo Blazquez Dominguez
Nú liggur fyrir að Hatari verður 17. atriði á svið á úrslitakvöldi Eurovision annað kvöld. Það kann að gleðja Íslendinginn að sautjánda sæti í röðinni er sannkallað lukkusæti. Þrisvar á þessari öld, og sjö sinnum í heildina, hefur sigurlagið setið í sæti númer sautján úrslitakvöldið en almennt er viðurkennt að betra sé að vera í seinni hlutanum en þeim fyrri.

Eurovision hefur tekið miklum breytingum í seinni tíð. Þátttökuþjóðum hefur fjölgað til muna þannig að 17. sæti árið 1980 var þriðja síðasta sætið. Undanfarin ár, þegar 26 þjóðir hafa keppt í úrslitum, er sætið rétt fyrir aftan miðju.

Fyrirkomulagið varðandi hvernig atriðin raðast er blanda af lukku og ákvörðun gestgjafans. Þannig dró Klemens Nikulás Hannigan miða eftir fyrra undanúrslitakvöldið þar sem fram kom að Ísland væri í seinni hlutanum. Síðan er það ákvörðun sjónvarpsfólksins í Ísrael hvernig löndin raðast í fyrri og seinni hlutann.

Af þeim þjóðum sem taldar eru líklegastar til að vinna annað kvöld þá eru Hollendingar taldir langsigurstranglegastir með 44% líkur á sigri. Söngvari þeirra, Duncan Laurence er tólfti á svið, en Svíinn John Lundvik er níundi á svið.

Aserbaídsjan er 20. á svið, Ítalir 22. atriði, Sviss 24. á svið og Ástralir 25. og næstsíðastir. Öllum þjóðunum er spáð velgengni á laugardagskvöldið.

Töluverðar greiningar hafa verið gerðar á röðun laganna í gegnum tíðina og kennir ýmissa grasa. Lagið sem er númer tvö í röðinni úrslitakvöldið hefur til dæmis aldrei unnið keppnina. Sé litið til árangurs frá árinu 2003 hefur átjánda sætið skilað flestum stigum í heildina en annað sætið fæstum. Þá þykir ekki vænlegt til árangurs að vera með rólega ballöðu snemma í keppninni. Ef þú ert með lag í fyrri hlutanum er betra að það sé á góðu tempói. En á öllu þessu eru undantekningar.

Atriðin sjö sem sigrað hafa í Eurovision í 17. sæti eru Íslendingum mörg hver að góðu kunn. Hlusta má á nokkur hér að neðan.

Johnny Logan fyrir Írland með What's Another Year árið 1980

Lordi fyrir Finnland með Hard Rock Hallelujah árið 2006

Marija Serifovic fyrir Serbíu með Molitva árið 2007

Loreen fyrir Svíþjóð með Euphoria árið 2012.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.