Þú ert ekki beint fyrir óvissuferðir því þú vilt stýra atburðunum og sjá hvað þú ætlar að gera áður en þú gerir það, en núna geturðu lagt lífið þitt í hendur Almættisins því það er að senda þér allmarga smiði til að reisa þér tígulegt hús. Ástin vill þig og er spennt að dansa við þig og þessarri setningu er beint sérstaklega til þeirra sem eru lausir og liðugir.
Það opnast betri aðgangur fyrir þér að peningum og þá verður þér létt, því þú vilt ekki stóla á aðra og ert svo harðdugleg að það er einsdæmi, en að sjálfsögðu er fullt af liði sem er ekki sammála þér svo þú þarft að tileinka þér að vera slétt sama, þá mun enginn geta hvorki beygt þig né brotið.
Þú skalt bara leyfa þér að slaka á þennan síðasta mánuð sumars því þú hefur gott af því að hvíla þig og leyfa þér það af öllu hjarta. Þú átt svo marga góða að sem myndu ganga í sjóinn fyrir þig, það eina sem þú þarft að gera er að biðja um aðstoð, en það er ekki alveg í eðli þínu. Þú sérð birtuna betur á næstu vikum, þú hefur öll orðin til að leysa þessa krossgátu sem þér finnst hafa verið frekar erfið. Þú ert dásamlega vel undir það búin að tengja þig betur samferðafólki þínu eða því fólki sem er að koma inn í líf þitt þetta haust, þú ert nefnilega svo góð í því að sýna öðrum einlægan áhuga, það er allt sem þarf.
Knús og kossar, Sigga Kling

Steingeit 22. desember - 19. janúar
Svava Johansen í Sautján, 7. janúarIngibjörg Sólrún Gísladóttir, 31. desember
Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins 17. janúar
Jón Gnarr, listamaður, 2. janúar
Tómas Guðbjartsson læknahetja, 11. janúar
Dorrit Moussaieff forsetafrú, 12. janúar
Stefán Jakobsson, tónlistarmaður, 14. janúar
Þuríður Blær Jóhannsdóttir, leikkona og Reykjavíkurdóttir, 16. janúar
Jóhann K. Jóhannsson fréttamaður. 9. janúar
Guðrún Ýr Eyfjörð, tónlistarkonan GDRN, 8. janúar
Edda Andrésdóttir, fréttaþulur, 28. desember
Michelle Obama, forsetafrú, 17. janúar
Aron Már Ólafsson, Aron Mola, 12. janúar