Danmörk og Noregur mætast í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í handbolta í Herning á morgun. Hvorugt liðið hefur áður unnið HM og því verða nýir heimsmeistarar krýndir á morgun.
Mikkel Hansen sýndi allar sínar bestu hliðar þegar Danir unnu ríkjandi heimsmeistara Frakka, 38-30, í fyrri undanúrslitaleiknum í gær. Hansen skoraði tólf mörk úr aðeins 15 skotum og gaf sex stoðsendingar. Hann er langmarkahæstur á HM með 65 mörk.
Danir léku frábæran sóknarleik sem franska vörnin réð ekkert við. Þá vörðu frönsku markverðirnir, Vincent Gerard og Cyril Dumoulin, aðeins fjögur skot samanlagt.
Þetta er í fjórða sinn sem Danir leika til úrslita á heimsmeistaramóti. Þeir töpuðu úrslitaleik HM 1967, 2011 og 2013.
Í seinni undanúrslitaleiknum vann Noregur sex marka sigur á Þýskalandi, 25-31. Norðmenn komust einnig í úrslit á HM 2017 þar sem þeir töpuðu fyrir Frökkum.
Þetta var fyrsta tap Þjóðverja á HM og heimavöllurinn dugði skammt en báðir undanúrslitaleikirnir fóru fram í Hamborg. Noregur hefur unnið átta af níu leikjum sínum á HM í ár. Eina tapið kom gegn Danmörku í riðlakeppninni.
Magnus Rod skoraði sjö mörk fyrir Noreg í leiknum í gær og þeir Sander Sagosen og Bjarte Myrhol sín sex mörkin hvor. Uwe Gensheimer skoraði sjö mörk fyrir Þýskaland sem mætir Frakklandi í bronsleiknum á morgun.
Sport