Í ljóðinu Jólasveinarnir eftir Jóhannes úr Kötlum segir:
- Sá fimmti, Pottaskefill,
- var skrítið kuldastrá.
- - Þegar börnin fengu skófir
- hann barði dyrnar á.
-
- Þau ruku' upp, til að gá að
- hvort gestur væri á ferð.
- Þá flýtti' ann sér að pottinum
- og fékk sér góðan verð.
Kvæði Jóhannesar úr Kötlum er birt með góðfúslegu leyfi Svans Jóhannessonar. Nánar má lesa um skáldið á vefnum johannes.is.
Hér fyrir neðan syngur Pottaskefill lagið Jólasveinar einn og átta í gömlu myndbandi frá Jolasveinarnir.is.