Lífið

Friðrik Dór mætti óvænt eftir að framkvæmdunum var lokið á Bræðraborgastígnum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sandra elskar hreinlega Frikka Dór.
Sandra elskar hreinlega Frikka Dór.
Gulli Helga fór af stað með nýja þáttaröð af Gulli Byggir á Stöð 2 í síðustu viku. Í fyrsta þættinum var fylgst með framkvæmdum við Bræðraborgastíg og fór þáttur tvö í loftið í gær og var hægt að sjá lokaútkomuna.

Sandra Hlíf Ocares keypti lítið einbýlishús í miðborg Reykjavíkur árið 2011 en þá hafði hústökufólk komið sér fyrir í húsinu og var ástandið á því slæmt.

Að þessu sinni tók hún háaloftið í burtu og opnaði fyrir inni í stofu til að fá meira loftrými og í leiðinni bjartari og fallegri stofu. Einnig tók hún eldhúsið alveg í gegn.

Framkvæmdirnar tóku heldur betur á og tóku mun lengri tíma en Sandra hafði gert ráð fyrir. Sandra er einn mesti aðdáandi Friðriks Dórs á landinu og hlustaði hún á tónlistarmanninn í gegnum allt ferlið.

Gulli kom henni því á óvart undir lokin og fékk Frikka til að mæta og taka lagið inni í glænýrri stofu á Bræðraborgastígnum.


Tengdar fréttir

Óhugnanlegar rúnir krotaðar á alla veggi

"Ég mun kæra þetta,“ segir Sandra Hlíf Ocares, sem keypti niðurnítt hús á Bræðraborgarstígnum fyrir nokkru, en óprúttnir aðilar virðast hafa brotist inn í skjóli nætur, krotað fornar rúnir á veggina og rist að auki rúnir í steypu sem var að þorna.

Öryggismyndavélar vakta hústökuhúsið

„Ég er orðin nokkuð örugg. Mér líður allavegana betur með þetta," segir Sandra Hlíf Ocares, sem keypti niðurnítt hús á Bræðraborgarstígnum fyrir nokkru, en nú er búið að koma upptökuvélum í húsið.

Eggjum kastað í hústökuhúsið

„Við vorum búin að vera hérna um helgina að gera fínt í kringum húsið og svona. Það var mjög leiðinlegt að koma að húsinu og sjá að það var búið að kasta eggjum í framhurðina," sagði Sandra Hlíf Ocares.

Breytingarnar eru svakalegar (hústökuhúsið)

„Þetta er ennþá pínu óraunverulegt," segir Sandra Hlíf Ocares, sem keypti niðurnítt hús á Bræðraborgarstígnum fyrir nokkru, en það tók hana ekki nema fjórar vikur með hjálp fjölskyldu, vina og fyrirtækja sem aðstoðuðu hana að gera húsið íbúðarhæft.

Viðbjóðurinn nánast horfinn

Sandra Hlíf Ocares, sem keypti niðurnítt hús á Bræðraborgarstígnum fyrir nokkru ætlar að flytja inn um helgina með stúlkurnar sínar tvær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.