Lífið

Opnar sýninguna Mjúkberg í Ekkisens galleríi í kvöld.

Steingerður Sonja Þórisdóttir skrifar
Sara mun starfa sem landvörður í Jökulsárgljúfri í sumar.
Sara mun starfa sem landvörður í Jökulsárgljúfri í sumar. Fréttablaðið/Sigtryggur Ari
Listakonan Sara Björg Bjarnadóttir útskrifaðist úr myndlistadeild Listaháskóla Íslands vorið 2015 en hún tók fornám á undan í Myndlistarskólanum í Reykjavík. Hún opnar sína sjöttu einkasýningu, Mjúkberg, í Ekkisens galleríi í kvöld.

„Eftir útskrift ákvað ég að fara til Berlínar í starfsnám hjá myndlistarmanninum Markus Zimmermann. Ég var í starfsnámi hjá honum í átta mánuði. Hann trúði lítið á stigveldi eða stigskiptingu og vildi ekki segja mér til verka og varð þá starfsnámið að meiri samvinnu og listrænu samtali.“

Eftir dvölina hafði Sara kynnst borginni vel og myndað sterk tengsl við hana. „Þess vegna ákvað ég að setjast að í Berlín, en ég kem reglulega til Íslands og vil rækta samband mitt við samfélagið hér og fjölskylduna. Í sumar verð ég á Íslandi í fjóra mánuði og mun starfa sem landvörður í Jökulsárgljúfri. Ég hlakka mikið til þess og það er alveg frábært að byrja þetta tímabil á einkasýningu í miðbæ Reykjavíkur áður en ég fer á fjöll.“

Galleríið Ekkisens er rekið af Freyju Eilíf myndlistarkonu og er í kjallara hússins þar sem amma hennar býr.

„Gólfið í rýminu var kveikjan að sýningunni. Svona gólf eru mjög algeng í eldri húsum á Íslandi og hluti þess er alveg eins og hjá ömmu minni og afa. Mynstraða gólfið tengdi ég við stórkornóttar bergtegundir og er endurunninn svampur með áþekka áferð. Ég hef unnið mikið með svamp í öðrum verkum mínum.“

Þannig fór af stað ferli þar sem Sara leyfði efniviðnum, sem sagt endurunna svampinum, að leiða hana áfram.

„Ég ákvað að kalla seríuna Soft Rock Assemblage, eða Mjúkberg. Ég ímyndaði mér að þetta væri eins konar framtíðar bergtegund sem ég væri að vinna með. Í framtíð þar sem náttúrufyrirbæri væru orðin að hluta til „synthetísk“ og innihéldu leifar af manngerðum efnum.“

Sýningin er opnuð klukkan 17.00 í dag og er í Ekkisens galleríi, Bergstaðastræti 25b, og verður opin klukkan 15-18, laugardaga og sunnudaga, fyrstu þrjár helgarnar í júní.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.