Jólabarn allt árið Elín Albertsdóttir skrifar 28. október 2019 10:00 Elín Marta stofnaði Facebook-grúppuna Jólabörn fyrir fimm árum. Nú er síðan með 1.900 jólabörn sem fylgjendur. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Þótt flestum finnist enn langt til jóla eru sumir farnir að bíða þeirra með mikilli eftirvæntingu, fagna öllum skreytingum og jólageitinni í Ikea. Elín Marta er eitt þessara jólabarna. Hún segist ekki eiga langt að sækja þennan áhuga því bæði móðir hennar og amma hafa alltaf verið mikil jólabörn og skreytt mikið fyrir jólin. „Það er óhætt að segja að ég sé mikið jólabarn og hef alltaf verið. Mamma hefur alltaf skreytt mjög mikið og safnað að sér alls kyns jólaskrauti. Ætli hún hafi ekki smitast af móður sinni sem einnig var mikið fyrir að skreyta,“ segir Elín Marta. „Svo hefur dóttir mín erft þetta frá mér þótt hún sé bara sjö ára. Hún er strax farin að tala um jólin og hlakkar mikið til þeirra,“ bætir hún við og hlær að öllu saman.Brugðið á jólaleik í Hyde Park í London í desember 2011.Þótt Elín Marta hugsi um jólin allt árið byrjar hún ekkert sérstaklega snemma að skreyta. „Ég byrja yfirleitt að skreyta þegar ég set aðventuljós í gluggann fyrst í aðventunni. En ég lauma nú gjarnan einhverjum ljósaseríum upp fyrr því það er svo gott að fá birtuna frá þeim,“ segir hún. „Ég er ekkert sérstaklega jólaskrautsglöð sjálf þótt ég sé svona mikið jólabarn. Hef þetta hæfilegt og nágrannar mínir þurfa ekkert að óttast. En ég hef ótrúlega gaman af því að horfa á jólaskraut hjá öðrum og dáist mikið að því. Jólin eru svo ótrúlega skemmtilegur tími og minn uppáhalds á árinu.“Nítján hundruð jólabörn Elín Marta segist tala um jólin allan ársins hring og byrja að telja niður um hásumar. „Stundum er fólk að verða brjálað á þessum áhuga mínum,“ segir hún. Elín Marta setti upp jólasíðuna á Facebook fyrir fimm árum. „Ég vissi um nokkra svona jólabrjálaða og ákvað að gleðja þá með þessari síðu þar sem alltaf væri hægt að dást að jólum og öllu því sem þeim fylgja. Þetta fór rólega af stað en allt í einu jókst aðsóknin og núna eru 1.900 jólabörn sem fylgja síðunni. Ég er því ekki sú eina á landinu,“ segir hún. „Á þessari síðu má fólk vera spennt og fullt tilhlökkunar, dást að jólamyndum og telja niður. Þetta var lítið fyrst og hálfgerður saumaklúbbur, fólk að deila jólamyndum. Ég vona að síðan fari á fullt núna fyrir jólin og hlakka til að sjá myndir. Þeir hörðustu fara sennilega að skreyta núna fljótlega þótt það sé eiginlega ekki samfélagslega viðurkennt að skreyta svo snemma. Margir í þessum hópi setja jólaljósin fljótt upp bæði úti og inni.“Jólabakstur fljótlega Elín Marta ólst upp við smákökubakstur fyrir jólin og hún viðheldur þeim sið. „Ég býst við fara í baksturinn fljótlega. Geri alltaf nokkrar tegundir og held í hefðirnar. Það er svo notalegt að fá bökunarilminn um húsið. Jólalögin eru alltaf í spilun. Ég meira að segja laumast til að hlusta á þau í vinnunni því það er svo notalegt að hafa þau í bakgrunninum. Svo gott að hafa smá „jingle“ í eyrunum,“ segir Elín Marta sem er starfs- og námsráðgjafi hjá Þjónustu- og þekkingarmiðstöðinni fyrir blinda og sjónskerta. Þetta er krefjandi starf en hún segist finna sig í því að hjálpa öðrum. „Það reyndar tengir mig við jólin því mér finnst ofboðslega gaman að gefa gjafir. Ég ákveð mjög snemma hvað mig langar að gefa fjölskyldunni í jólagjöf. Við gefum gjafir hvert til annars upp í fermingaraldur.“Jólaljósin eru ekki enn komin upp hjá fólki en Elín Marta hlakkar mikið til þegar skreytingarnar koma á húsin.FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARIHeldur í gamlar hefðir Elín María á tvö börn og sambýlismaður hennar átti tvö fyrir svo fjölskyldan er stór. „Það er alltaf mikil gleði hjá okkur um jólin þegar fjölskyldan hittist. „Amma mín bauð alltaf stórfjölskyldunni í heitt súkkulaði og kökur á jóladag sem var ákaflega skemmtilegt. Núna er hún orðin öldruð og komin á hjúkrunarheimili svo það er ekki lengur, því miður. Ég hef reynt að bæta fyrir það og býð heim til mín nánustu fjölskyldu. Mér finnst notalegt að halda í gamlar hefðir. Við förum síðan í hangikjöt til foreldra minna. Ég var alin upp við svínabóg á aðfangadag en maðurinn minn er ekki fyrir hvítt kjöt þannig að við höfum sammælst um svínahamborgarhrygg í staðinn.“ Móðir Elínar Mörtu vildi hafa jólaskrautið langt fram í janúar en dóttirin tekur allt niður á þrettándanum. Ástæðan er sú að Elín Marta á afmæli 18. janúar og hún skammaðist sín fyrir það að jólatré væri enn í stofunni þegar hún bauð vinum sínum í afmælisveislu. „Það var sérstaklega viðkvæmt á unglingsárunum,“ segir hún. „Hins vegar finn ég alltaf fyrir jólablús þegar jólaskrautið er tekið niður. Þegar ljósin fara verður allt svo dimmt. Ég reyni því að halda í hvítu perurnar sem lengst. Annað tilhlökkunarefni er þegar jólabækurnar streyma á markaðinn. Ég bíð eftir Bókatíðindunum,“ segir hún en viðurkennir að bóklestur sé minni en hann var áður fyrr. „Ég bý alltaf til aðventudagatal sem ég opna síðan með börnunum og finnst dásamlegt þegar aðventan fer á fullt og jólasveinarnir koma til byggða.“Dætur Elínar Mörtu, Ásta Svanhild og Þórunn Edda, við jólatréð 2017.Viðburður í jólahúsi Facebook-síðan Jólabörn ætlar að vera með viðburð 5. desember. „Við ætlum að koma saman í Jólahúsinu í Hafnarstræti og eiga skemmtilegt jólakvöld. Þeir sem eru meðlimir á síðunni og mæta á viðburðinn fá 15% afslátt af jólaskrauti þetta kvöld. Það verður mjög jólakósý og ég hlakka til að hitta allt þetta fólk sem hefur áhuga á síðunni minni, sjá framan í það og ræða saman. „Mér finnst mjög skemmtilegt að halda úti þessari síðu og væri til í að hún yrði mun virkari. Ég hvet meðlimi til að fara á fullt í jólaskapinu og deila efni,“ segir Elín Marta. „Nóvember og desember eru dimmir og kaldir mánuðir og jólaskrautið og -ljósin eru fyrir mér ljósið í myrkrinu. Fólk er innilegra á þessum árstíma og maður fær fleiri knús. Fjölskyldur hittast og vinnustaðir gera eitthvað skemmtilegt. Jólin vekja upp góðar minningar. Ég er mikil vetrarkona enda fædd í janúar. Þessi árstími hentar mér því mjög vel. Mér þykir gaman að fara út í snjóinn að leika með börnunum.“
Birtist í Fréttablaðinu Jólafréttir Mest lesið Traustið var löngu farið úr sambandinu Lífið Eva sýnir giftingahringinn Lífið Við getum gert fullt til að draga úr líkum á heilabilun Lífið Addison Rae á Íslandi Lífið „Hvenær er hægt að leita í óskilamun hjá ykkur?“ Menning Helga Lind selur sjarmerandi íbúð í hjarta miðborgarinnar Lífið „Eins og staðan er núna styttist í endamarkið“ Lífið Uppskrift að umræddasta súkkulaði landsins Lífið Inga Lind hlaut blessun á Balí Lífið Samþykktu að yngja viðmælandann um fimm ár Lífið Fleiri fréttir Opnar fyrsta kynlífsklúbbinn á Íslandi Addison Rae á Íslandi Eva sýnir giftingahringinn Helga Lind selur sjarmerandi íbúð í hjarta miðborgarinnar Traustið var löngu farið úr sambandinu Stjarnanna borg á fjalirnar hjá Verzló Við getum gert fullt til að draga úr líkum á heilabilun Uppskrift að umræddasta súkkulaði landsins Inga Lind hlaut blessun á Balí Unnur Birna og Pétur selja raðhúsið „Eins og staðan er núna styttist í endamarkið“ Samþykktu að yngja viðmælandann um fimm ár Hanna húfu til styrktar björgunarsveitunum Fréttastjóri Heimildarinnar orðin móðir Gallabuxnaklæddum Jóni Gnarr meinaður aðgangur að þingsal Sjóðheitt teiti einhleypra og dildókast Dóttir fyrrverandi Ungfrú Ísland komin í heiminn og nefnd Sonur Röggu Hólm og Elmu kominn með nafn Kom fram í fyrsta skipti eftir andlát eiginmannsins Ómótstæðilegur núðluréttur á fimm mínútum Andlát ungrar leikkonu skekur Suður-Kóreu Norah Jones með sumartónleika í Hörpu Stjörnulífið: Ástin í algleymingi og fáklæddar ofurskvísur Bryan Adams til Íslands Selja á Laugavegi og bíða eftir erfingja Conclave og Emilia Perez bestu myndirnar á BAFTA „Ég sá fyrir mér að ég myndi deyja langt fyrir aldur fram“ Barnabarn Helgu Steffensen blæs lífi í Brúðubílinn Tom Cruise og Ana de Armas sögð stinga saman nefjum Sviptir hulunni af þrettánda barni Musks Sjá meira