Jól

Jólalag dagsins: Hátíð í bæ með Hauki Heiðari í Diktu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Haukur Heiðar og félagar í Diktu eru með jólatónleika í Bæjarbíó þann 7. desember.
Haukur Heiðar og félagar í Diktu eru með jólatónleika í Bæjarbíó þann 7. desember. Vísir/Daníel Þór Ágústsson
Fimmti desember er runninn upp og því nítján dagar til jóla. Á sjónvarps- og útvarpsvef Vísis má finna fjölmörg hugljúf jólalög sem margir af okkar fremstu listamönnum hafa tekið í gegnum tíðina.

Vísir ætlar að telja niður til jóla með fallegu jólalagi úr safni sínu á hverjum degi.

Í dag býður Vísir upp á lagið Hátíð í bæ með Hauki Heiðari Haukssyni, söngvara Diktu og lækni með meiru.

Haukur Heiðar flutti þessa fallegu ábreiðu af laginu í Morgunþættinum á FM957 í desember 2015.



×