Fasteignavefurinn fasteignir.is sem er á Vísi og fjártæknifyrirtækið Two birds, hafa gert með sér samstarfssamning sem hefur það markmið að auka enn frekar gæði og upplýsingar til notenda fasteignavefsins.
Við hverja auglýsta fasteign er nú hægt að smella á Eignaglugga Two Birds til að nálgast nánari upplýsingar um eignina og finna upplýsingar um rekstur og fjármögnun á eigninni, auk skemmtilegrar lýsingar á því hverfi sem eignin er í.
Upplýsingar um tegundir íbúða og aldursskiptingu íbúa er einnig að finna á síðunni auk upplýsinga um helstu þjónustur í nágrenni sem fengin er úr nýrri Kortasjá Two Birds.
„Við erum mjög ánægð með þetta samstarf við Félag fasteignasala,“ Segir Auður Björk Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Two Birds.
„Okkar markmið er að vinna upplýsingar úr þeim gögnum sem við höfum safnað um fasteignamarkaðinn, þar sem við notumst við háþróaða tækni eins og gervigreind með djúptauganeti til að búa til notendavænar upplýsingar fyrir kaupendur fasteigna.
Með þessari þjónustu getur fólk tekið upplýstari ákvarðanir í þessum stærstu viðskiptum sem sumir gera á lífsleið sinni.“
Breytingarnar svar við óskum notenda
„Til að tryggja sem best gæði fasteignavefsins fasteignir.is er reglulega kallað til samstarfs við notendur vefsins á öllum aldri auk fasteignasala og gæði vefsins þannig stöðugt tryggð. Ofangreindar breytingar koma m.a. út frá óskum um auknar upplýsingar fyrir notendur vefsins,“ segir Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala.
„Vefurinn fasteignir.is er á þessu ári 11 ára en hann er í eigu Félags fasteignasala. Fasteignavefurinn er inni á visir.is og höfum við átt einstaklega gott samstarf við þann miðil,“ segir Grétar.
Þessi kynning er unnin í samstarfi við Félag fasteignasala.
Samstarf