Dallas bjargaði stigi fyrir Leeds

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Dallas bjargaði stigi fyrir Leeds.
Dallas bjargaði stigi fyrir Leeds. vísir/getty

Stuart Dallas kom í veg fyrir að Leeds United tapaði öðrum leiknum í röð þegar hann jafnaði gegn Preston þegar mínúta var til leiksloka. Lokatölur 1-1.

Leeds hefur aðeins fengið tvö stig í síðustu þremur leikjum sínum.

Strákarnir hans Marcelos Bielsa eru í 2. sæti ensku B-deildarinnar með 48 stig, þremur stigum á eftir toppliði West Brom.

Alan Browne kom Preston yfir á 22. mínútu og það mark virtist ætla að duga gestunum til sigurs. En Dallas var á öðru máli og jafnaði á 89. mínútu.

Preston er í 6. sæti deildarinnar með 39 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira