Lífið

Ragnar og Alyona eiga von á sínu fyrsta barni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ragnar og Alyona saman á fallegri mynd sem hún birti á Instagram-reikningi sínum fyrir viku.
Ragnar og Alyona saman á fallegri mynd sem hún birti á Instagram-reikningi sínum fyrir viku.

Parið Ragnar Sigurðsson og Alyona eiga von á sínu fyrsta barni saman.

Alyona greinir frá því á Instagram og segir: „Ég er komin 33 vikur á leið. Á svona tímum kemur hamingjan með litlum hlutum eins og að fara út í göngutúr.“ Þetta er fyrsta barn parsins saman en fyrir á Ragnar einn son.

Alyona virðist vera stödd á flugvelli í Reykjavík á myndinni og ef marka má orð hennar hefur parið tekið út fjórtán daga sóttkví hér á landi.

Ragnar Sigurðsson hefur verið landsliðsmaður íslenska landsliðsins í mörg ár og leikur í dag með danska liðinu FC Kaupmannahöfn.

 Þann 25.mars greindi Alyona frá því að þau ættu von á barni saman. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.