Lífið

Leikararnir í Sápunni ruddu sér leið inn í hljóðver FM957

Stefán Árni Pálsson skrifar
Nokkuð spaugilegt atvik. 
Nokkuð spaugilegt atvik. 

Sápan eru nýir íslenskir grín sápuóperu þættir á Stöð 2 þar sem þjóðþekktir Íslendingar mæta í gestahlutverkum og leika á móti aðalpersónum þáttanna. Þættirnir hefja göngu sína á föstudagskvöldið og hefur leikarahópurinn verið í tökum síðustu daga í myndveri við Suðurlandsbraut 10.

Leikarar eru meðvitaðir um að þeir séu að leika í sápuþætti þar sem allt er leyfilegt. Í aðalhlutverkum eru Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Aron Már Ólafsson og Arnar Jónsson.

Katla og Jóhannes Haukur leika par sem aldrei giftu sig en hafa verið saman í 15 ár. Eftir mikla einangrun í kórónuveiru ástandinu hefur Katla gert upp hug sinn. Hún vill skilnað. Þau búa í meðalstórri íbúð á höfuðborgarsvæðinu á góðum stað.

Jóhannes leikur mann sem starfar sem endurskoðandi en hefði viljað vinna við eitthvað nær náttúrunni en hafði aldrei kjarkinn til að elta draumana. Katla leikur aftur á móti konu sem starfar sem hárgreiðslukona og hefur ekki getað sinnt vinnunni síðan Covid-19 ástandið skall á, en hefur komið fyrir stól inni í íbúð þar sem hún fær til sín kúnna í tíma og ótíma sem fer ekki vel í eiginmanninn.

Aron Már leikur karakter sem er nýfluttur í blokkina. Myndarlegur, hress og skemmtilegur strákur sem elskar að ferðast og hefur augastað á Kötlu. Karakter Jóhannesar eignast skyndilega fullt af peningum eftir að hann vinnur í lottóinu. Katla fer strax í það að sannfæra hann um að núna sé kominn tími til að gifta sig, bara svo hún geti drepið hann með aðstoð Arons og þau flutt saman til Balí.

Í morgun tóku leikararnir og leikstjórar upp á því að riðja sér leið inn í hljóðver FM957 og taka yfir útsendinguna. Atvikið náðist á myndband sem sjá má hér að neðan en þar má sjá leikstjórana Fannar Sveinsson og Benedikt Valsson og leikarana Aron Má Ólafsson og Jóhannes Hauk Jóhannesson taka yfir.

Hér að neðan má hlusta á innslag leikarahópsins í Brennslunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.