Bíó og sjónvarp

Stefnir stórstjörnum til Íslands

Sigurjón Sighvats
Sigurjón Sighvats

Stefnt er að því að fá þau Jake Gyllenhaal, Natalie Portman og Toby Maguire til að vera viðstödd frumsýningu kvikmyndarinnar Brothers hér á landi. Framleiðandi kvikmyndarinnar er Sigurjón Sighvatsson og staðfesti hann þetta í samtali við Fréttablaðið. Tökum á kvikmyndinni er nú lokið og segir Sigurjón að stefnan sé sett á kvikmyndahátíðina í Cannes hvað heimsfrumsýningu varðar.

„Tökurnar gengu ótrúlega vel og hún virðist líta vel út," segir Sigurjón. Efni myndarinnar ætti að eiga vel upp á pallborðið hjá bandarískum áhorfendum. Myndin segir frá því hvernig líf tveggja bræðra tekur stakkaskiptum eftir að annar þeirra er sendur í stríðið gegn hryðjuverkum í Afganistan.

Meðal annarra leikara er Sam Shepard en hann leikur einmitt líka stórt hlutverk í kvikmynd Baltasars Kormáks, Inhale.

Sigurjón hefur unnið ötullega að því að koma fatamerkinu sínu 66° Norður að í Hollywood. Gyllenhaal hefur verið myndaður í fatnaði frá fyrirtækinu, Anita Briem klæddist flísfatnaðinum í The Journey to the Center of Earth og ekki þarf að hafa mörg orð um ást bandaríska leikstjórans Quentins Tarantino á vörumerkinu. Það þarf því ekki að koma neinum á óvart að 66° Norður kemur einnig við sögu í Brothers.

„Natalie Portman er vel dúðuð í fatnaði frá 66° Norður í tveimur skautasenum sem er að finna í myndinni," segir Sigurjón. Ráðgert er að kvikmyndin verði frumsýnd í Bandaríkjunum á næsta ári. Leikstjóri myndarinnar er Jim Sheridan.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×