Körfubolti

Ingi Þór: „Þegar maður er búinn að gera í buxurnar þá þarf maður að skipta um buxur“

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar

„Þegar maður er búinn að gera í buxurnar þá þarf maður að skipta um buxur," sagði Ingi Þór Steinþórsson þjálfari Íslandsmeistaraliðs Snæfells í kvöld eftir 94-80 sigur liðsins gegn KR í Iceland Express deild karla í körfuknattleik.

Ingi var með þessum orðum að vísa í breytingar á varnarleik liðsins í fjórða leikhluta en svæðisvörn Snæfells sló KR algjörlega út af laginu en KR var með 10 stiga forskot eftir þriðja leikhluta, 71-61.

„Við vorum tíu stigum undir og það var allt galopið í vörninni . Við urðum að gera eitthvað," bætti Ingi Þór við en viðtalið í heild sinni má sjá hér fyrir ofan með því að smella á hnappinn.

Snæfell-KR   94-80

Stig Snæfells: Pálmi Freyr Sigurgeirsson 28 (5 fráköst, 5 stoðsendingar), Sean Burton 21 (8 stoðsendingar), Ryan Amoroso 15 (11 fráköst), Emil Þór Jóhansson 13 (6 stoðsendingar), Jón Ólafur Jónsson 7 (6 fráköst, 5 stoðsendingar), Sveinn Arnar Davíðsson 5, Egill Egilsson 3, Atli Rafn Hreinsson 2.

Stig KR: Hreggviður Magnússon 15 (5 stoðsendingar, 5 fráköst), Marcus Walker 14 ( 4 fráköst, 2 stoðsendingar), Brynjar Þór Björnsson 14, Pavel Ermolinskij 12 (11 fráköst, 9 stoðsendingar), Jón Orri Kristjánsson, Skarphéðinn Freyr Ingason 6, Fannar Ólafsson 5, Finnur Atli Magnússon 4, Ólafur Már Ægisson 3.

 

 










Fleiri fréttir

Sjá meira


×