Lífið

"Við blöstu bara dásamlegar stinnar hvítar rasskinnar."

Marín Manda skrifar
Nafn?  Aldís Pálsdóttir



Aldur? Ohh, tuttugu og tólf



Starf? Ljósmyndari



Hvern faðmaðir þú síðast?



Ég faðmaði hund tengdaforeldra minna, sem týndist í klukkutíma. Allir voru svo glaðir að fá dýrið aftur. 



En kysstir? Ég kyssti kærastann minn. 



Hver kom þér síðast á óvart og hvernig?



Brúðhjón sem ég myndaði síðasta laugardag. Þau voru með „óhefðbundið” giftingarpartí þar sem allir sungu og dönsuðu og föðmuðust á meðan þau voru gefin saman. „Baba nam kevalam.“ Það var dásamleg upplifun!



Hvaða galla í eigin fari ertu búin að umbera allt of lengi?

Fullt af göllum. Ég er löt á morgnana!

Ertu hörundsár? 

Já, ég get orðið mjög hörundsár.



Hvenær gerðirðu þig síðast að fífli og hvernig?

Eitt atvik situr í mér sem gerðist fyrir u.þ.b. 10 árum. Þá var ég með móður minni á búðarrápi og var ægilega ánægð með hvað karlpeningurinn tók vel eftir mér.

Allt í einu hangir mamma aftan í mér. Ég fann hvernig hún barðist við hláturinn og þegar við settumst inn í bíl sá ég að ég var með saumsprettu aftan á buxunum mínum.

Innan undir mjög svo þröngum Tark-buxum var ég í pínulitlum g-strengsnærbuxum sem sáust ekki… svo við blöstu bara dásamlegar stinnar hvítar rasskinnar.

Hringirðu stundum í vælubílinn?

Nei, eiginlega ekki. Ég á svolítið erfitt með að biðja um hjálp ef mig vantar hana. Það er einn ókosturinn við mig.

Tekurðu strætó?

Já, stundum. Aðallega á Akranesi þar sem ég bý. Hjá mér er frítt í strætó innanbæjar. Kemur fyrir að ég taki strætó til Reykjavíkur.

Hvað eyðirðu miklum tíma á Facebook á dag?

Ohh! Alltof miklum, en hey, Facebook er atvinnuskapandi fyrir mig!

Ferðu hjá þér þegar þú hittir fræga eða heilsarðu þeim?

Ég heilsa auðvitað sama hvort viðkomandi er frægur eða ekki ef ég þekki fólkið.

Lumarðu á einhverju sem fáir vinir þínir vita um þig?

Já, vá! Alveg fullt! Samt engu krassandi fyrir utan þau leyndarmál sem eru bara leyndó.

Hvað ætlarðu alls ekki að gera um helgina?

Ég ætla alls ekki að hringja í vælubílinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.