Viðskipti erlent

Gullið aldrei dýrara en nú

Gullstangir. Þær hafa aldrei verið dýrari en nú um stundir.
Gullstangir. Þær hafa aldrei verið dýrari en nú um stundir.

Verð á gulli fór í 923 dali á únsu á hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum í gær og hefur aldrei nokkurn tíma verið dýrara.

Verð á gulli hækkaði um þrjátíu prósent á síðasta ári og telja fjármálasérfræðingar að það eigi eftir að hækka enn meira.

Tvennt spilar inn í verðþróunina. Í fyrsta lagi urðu tafir á gullgreftri í stærstu gullnámu Suður-Afríku í vikulokin til þess að draga mjög úr framboði á eðalmálminum. Óvíst er hvenær framleiðsla hefst að nýju.

Í öðru lagi hafa gullkaup um aldaraðir þótt gulltrygg leið fyrir fjárfesta til að geyma fé sitt. Þeir hafa því upp leitað í auknum mæli eftir því að kaupa eðalmálminn enda ótryggar aðstæður á hlutabréfamörkuðum upp á síðkastið.

Breska ríkisútvarpið segir í dag, að bandaríski fjárfestingarbankinn JP Morgan hafi spá því að gullverðið geti hækkað enn frekar batni ekki ástandið á hlutabréfamörkuðum og geti það farið í allt að 975 dali á únsu á árinu. Þá skiptir sömuleiðis máli hvenær framleiðsla í gullnámunni hefst að nýju.

Þetta getur svo haft þau áhrif að verð á skartgripum úr gulli geti hækkað talsvert, að þeirra sögn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×