Lífið

Tónlistarmyndband til heiðurs Paul Walker

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Myndband við lagið All I Feel Is You með Natalia Safran er orðið að minningu um leikarann Paul Walker sem lést nýverið.

Í myndbandinu eru atriði úr kvikmyndinni Hours en í henni leikur Paul mann sem reynir að bjarga nýfæddu barni sínu.

Myndbandið var búið til áður en Paul lést en Natalia hefur nú tileinkað Paul það.

"Þegar við bjuggum það til átti það að vera sýnishorn úr kvikmyndinni og af frábærri frammistöðu Pauls. Síðan dundi harmleikurinn yfir og skyndilega varð myndbandið kveðja. Ég trúi enn ekki að hann sé farinn," segir Natalia en ágóði af sölu smáskífunnar All I Feel Is You rennur í góðgerðarsamtök Pauls, Reach Out Worldwide.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.