Vörur sem standast kröfur okkar Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar 26. janúar 2017 09:30 Ásgeir Hjartarson og Bergþóra Þórsdóttir opna búð með Make Up For Ever förðunarvörunum innan Mask – Makeup & Airbrush Academy förðunarskólans. Vísir/Stefán „
Þetta form á búð hér á landi hefur ekki verið til áður með Make Up For Ever förðunarvörum. þetta kallast ekki „pro boutique“, heldur „showroom“ sem er nákvæmlega eins og „pro búð“ nema að það eru ekki innréttingar frá þeim og við megum ekki merkja húsnæðið okkar með stórum og miklum stöfum, heldur þarf þetta að vera svolítið falið og ekki í allra augsýn,“ segir Ásgeir Hjartarson hárgreiðslumeistari, en hann ásamt eiginkonu sinni Bergþóru Þórsdóttir, hárgreiðslumeistara og listförðunarfræðingi, mun opna búð í dag innan Mask – Makeup & Airbrush Academy förðunarskólans sem þau reka saman ásamt hárgreiðslustofunni Hairbrush. „Við ætlum að halda aðeins upp á þetta í dag. Dj Tommi White verður að spila, við verðum með barþjóna á staðnum og ætlum að gefa nokkrum heppnum förðunarvörur í beinni og vera með einhvern smá kynningarafslátt,“ segir Ásgeir. Með þessu fyrirkomulagi fá þau að njóta þeirra forréttinda að fá nýjar vörur frá Make Up For Ever á undan stórum búðum erlendis. „Við komum til með að njóta þess að fá vörur um það bil mánuði áður en þær koma í stóru búðirnar eins og til dæmis Sephora,“ segir Ásgeir. En hvernig kom það til að þið vilduð taka inn þessar vörur? „Begga lærði upp úr þessum vörum fyrir mörgum árum, eða um 1988, og hefur keypt og notað þessar vörur í gegnum tíðina. Við vorum hreinlega í vandræðum með að finna vörur í skólann þar sem merki í þessum gæðaflokki voru þá samningsbundin hér heima og við vildum ekki vera með einhvern samtíning heldur vörumerki sem er þekkt og stenst allar kröfur okkar,“ útskýrir Ásgeir. „Make Up For Ever er mjög sterkt varðandi skóla og þjónar fagheiminum vel. Þeir eru nýtískulegir og gæðin eru á heimsmælikvarða,“ segir Ásgeir ánægður. Vörurnar frá Make Up For Ever hafa verið gífurlega vinsælar og hafa förðunarfræðingar hér á landi lengi beðið eftir því að vörunar yrðu fáanlegar hér. Það sem gerir vörurnar vinsælar er meðal annars gæði og flott markaðssetning. Hvað er það sem gerir þessar vörur vinsælar? „Þeir eru með örar breytingar, nýta sér nýjustu tækni í þróun og framleiðslu varanna, en fyrst og fremst gæði,“ segir hann. Allir geta keypt vörurnar, en Ásgeir bendir þó á að þau séu fyrst og fremst að fókusera á fagið sjálft og fólk sem starfar innan förðunargeirans. „Við erum að einblína meira á fólk sem er að vinna við fagið og fólk sem hefur brennandi áhuga á góðum vörum og kann að fara með þær. Við komum til með að geta boðið upp á svokölluð „pro kort“ sem gefur handhöfum 20 prósenta afslátt í búðinni en með skilyrðum og gegn vægri greiðslu,“ segir Ásgeir. Spurður út í verðið segir Ásgeir vörurnar vera á svipuðu verði og önnur þekkt merki. „Sumt er dýrara og annað ódýrara. En við myndum segja að Make Up For Ever sé algjörlega í takt hvað varðar verð og gæði. Við höfum fengið aragrúa af skilaboðum þar sem línunni er fagnað loksins almennilega hér á landi,“ segir Ásgeir og bætir við að þau séu virkilega spennt.
Mest lesið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Skálda opnar: „Kannski ekki margir nógu vitlausir til að framkvæma þessa hugmynd“ Menning Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Þriðja barnið á leiðinni Lífið Fleiri fréttir „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Sjá meira