Hlaut skólastyrk fyrir hæstu meðaleinkunnina Guðný Hrönn skrifar 26. janúar 2017 11:15
Bryndís Gyða Michelsen, fyrrverandi fyrirsæta og stofnandi síðunnar Hún.is, stundar nú lögfræðinám við Háskólann í Reykjavík af kappi. Bryndís er að massa námið því hún fékk hæstu meðaleinkunnina á seinustu önn, 8,37 nánar tiltekið, og fékk skólastyrk í tilefni þess. Upphaflega ætlaði Bryndís í læknisfræði en eftir að hafa íhugað málið komst hún að því að lögfræði hentaði henni betur. „Lögfræðin fór að heilla mig eftir að ég átti strákinn minn og var að spekúlera hvað ég vildi læra. Ég er ansi sátt með valið og held að ég hafi valið hárrétt fag, lögfræðin er nefnilega einstaklega skemmtileg,“ segir Bryndís sem fékk ansi góðar fréttir um daginn þess efnis að hún hefði hlotið hæstu meðaleinkunnina sem gefin var í lögfræði á önninni. „Það var ansi góð tilfinning að fá þessar fréttir. Ég vissi auðvitað í desember, eftir lokaprófin, hverjar einkunnir mínar voru og ég var ánægð með frammistöðu mína. En það er auðvitað mikill heiður að fá þennan skólastyrk sem háskólinn veitir þeim sem fá hæstu einkunn. Styrkurinn felst í greiðslu skólagjalda fyrir önnina. Mér finnst þetta frábært framtak hjá skólanum því þetta virkar án efa sem hvati fyrir nemendur.“ Bryndís Gyða kveðst alla tíð hafa átt auðvelt með bóklegt nám. „Já, bóklegt nám hefur alltaf legið vel fyrir mér en lykillinn að árangri er að mínu mati samviskusemi og að mæta í alla tíma og hlusta. Ég glósa mikið, bæði á fyrirlestrum og upp úr þeim bókum sem ég les í tengslum við námsefnið og það skiptir miklu máli til þess að ná góðum tökum á efninu,“ útskýrir Bryndís. „Ég er nú á þriðju önn og ég býst við að vera komin með BA-gráðuna eftir tæp tvö ár. Þá mun ég fara í mastersnám og þegar því er lokið langar mig að fara til útlanda og bæta við mig þekkingu þar og læra meira,“ segir Bryndís, spurð um hvað sé fram undan hjá henni. „Ég mun sérhæfa mig en hef ekki enn ákveðið í hverju það verður, það held ég að komi í ljós eftir því sem lengra líður á námið.“
Mest lesið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Skálda opnar: „Kannski ekki margir nógu vitlausir til að framkvæma þessa hugmynd“ Menning Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Þriðja barnið á leiðinni Lífið Fleiri fréttir „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Sjá meira