Sport

Sluman með eins höggs forystu

Bandaríkjamaðurinn Jeff Sluman er með eins höggs forystu eftir tvo keppnisdaga á Memorial-mótinu í bandarísku mótaröðinni í golfi. Hann er átta höggum undir pari, Tiger Woods er í öðru sæti ásamt Jonathan Kaye, Harrison Frazar, Lucas Glover og Nick O'Hern. Þeir eru aðeins einu höggi á eftir Sluman. Stigahæsti kyfingur heims, Vijay Singh, komst ekki í gegnum niðurskurðinn og kom það mjög á óvart. Gestgjafi mótsins, „gullbjörninn“ Jack Nicklaus, tókst heldur ekki að komast áfram. Mótið fer fram á Muirfield-vellinum í Dublin í Ohio. Sýnt verður beint frá mótinu á Sýn í kvöld og annað kvöld. Útsendingin í kvöld hefst klukkan 19.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×