Tónlistarmaðurinn og upptökustjórinn Valgeir Sigurðsson segist vel geta hugsað sér að starfa aftur með kanadísku tónlistarkonunni Feist. Þau unnu saman að nýrri plötu hennar, Metals, sem kemur út í næstu viku.
„Ég flaug til Kanada til að hitta hana. Við náðum vel saman og það var ákveðið að kýla á það," segir Valgeir um samstarfið við Feist. Tónlistarkonan sló í gegn með síðustu plötu sinni, The Reminder, sem fékk fimm Grammy-tilnefningar. Hún hefur einnig getið sér gott orð sem liðsmaður hljómsveitarinnar Broken Social Scene.

„Hún er kannski þyngri en sú síðasta. Hún er miklu meiri þrívídd, bæði í lagasmíðum og „sándi“ og ýmsum pælingum. Hún er ekki eins auðmelt á köflum en þarna eru gríðarlega flott lög.“
Valgeir segist hafa rætt við Feist um áframhaldandi samstarf. Það eigi þó eftir að koma ljós hvort af því verður en hann er opinn fyrir öllu. „Við ræddum um að það væri gaman að taka upp einhverja andstöðu við þessa plötu, eitthvað gríðarlega einfalt. Hún sendi mér demó sem voru með kassagítar. Þau eru gríðarlega flott líka. Mér finnst hún njóta sín mjög vel líka í einhverjum súper einfaldleika.“
freyr@frettabladid.is