Segja tafir á málsmeðferð ámælisverðar 3. júní 2011 05:00 fjölmargar ástæður málareksturs Dæmi um nýlegt mál sem kom til álita úrskurðarnefndar er kæra bónda vegna lyktarmengunar frá svínarækt. fréttablaðið/gva
Samtök atvinnulífsins gagnrýna úrskurðarnefnd um hollustuhætti og mengunarvarnir (ÚHM) fyrir að virða ekki tímamörk í lögum um afgreiðslu mála. Nefndin skilar úrskurðum sínum mánuðum og jafnvel árum eftir að lögbundnum tímamörkum er náð. Innan við helmingur erinda þeirra 24 nefnda sem hafa skilgreindan frest í lögum var afgreiddur á réttum tíma á nokkurra ára tímabili. Þetta er niðurstaða umboðsmanns Alþingis. SA tók saman hversu langan tíma það tekur ÚHM að kveða upp úrskurði í málum sem þangað er beint. Aðeins í eitt skipti af síðustu tuttugu úrskurðum hefur nefndin skilað niðurstöðu innan lögbundinna tímamarka. Að meðaltali tók það nefndina fjörutíu vikur að kveða upp úrskurð sinn, en í þremur af tuttugu málum sem SA skoðaði féll úrskurður ekki fyrr en eftir 16 til 39 mánuði. Lögbundinn frestur er fjórar vikur í hefðbundnum málum en átta vikur í viðameiri málum. Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður nefndarinnar, segir að tafirnar eigi sér eðlilegar skýringar. „Sannleikurinn er sá að það er erfitt að halda tímarammann nema málið sé mjög einfalt en gangur mála er misjafn, margra hluta vegna." Í úrskurðum nefndarinnar kemur fram að annir starfsmanna skýri í sumum tilvikum ástæður tafa. Steinunn viðurkennir að nefndarmennirnir þrír hafi önnur störf með höndum. „En við höfum lagt áherslu á að stytta tímann sem fer í afgreiðslu mála, eða eins stuttan tíma og hvert mál leyfir. Þegar tafirnar verða mjög langar eru alltaf sérstakar ástæður fyrir því." Steinunn vill ekki tjá sig um það hvort löggjafinn hafi vanmetið hlutverk nefndarinnar við lagasetninguna. Pétur Reimarsson, forstöðumaður hjá SA, hafnar því alfarið að það sé eðlilegt að einstök mál séu lengur en þrjú ár til skoðunar hjá nefndinni þegar skilafrestur er lengstur átta vikur. Hann segir það eðlilega kröfu að úrskurðarnefndir virði lög og reglur um málsmeðferð eins og krafist sé af einstaklingum og fyrirtækjum. Ástæða þess að SA skoðaði afgreiðslutíma nefndarinnar er að fyrir þinginu liggur frumvarp um úrskurðarnefnd um auðlindamál sem mun hafa víðtækt hlutverk. „Við erum að benda þinginu á það að þessi nýja nefnd hafi burði, starfsfólk og peninga, til að gegna sínu hlutverki."- sháPétur Reimarsson
Mest lesið Helgi er fundinn heill á húfi Innlent Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Innlent Lögregla lýsir eftir Helga Innlent Aurskriðuhætta og allt að fjörutíu metrar á sekúndu í hviðum Innlent Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til aðstoðar við leitina Innlent Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Innlent Björgunarbátur ræstur út til leitar að Þjóðhátíðargesti Innlent Tugir hægriöfgamanna handteknir í óeirðum í Bretlandi Erlent Trump bakkar frá samkomulagi um kappræður Erlent Fleiri fréttir Óveður um land allt og óeirðir í Bretlandi Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Helgi er fundinn heill á húfi Séra Frank M. Halldórsson sóknarprestur látinn Aurskriðuhætta og allt að fjörutíu metrar á sekúndu í hviðum „Ég skammast mín ekkert fyrir að tala upp nýsköpun“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til aðstoðar við leitina Björgunarbátur ræstur út til leitar að Þjóðhátíðargesti Aukin skriðuhætta og breytt hlutverk kirkjunnar Halda sínu striki þrátt fyrir veðrið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Biskup og umhverfisráðherra í Sprengisandi Lögregla lýsir eftir Helga Laus úr haldi eftir hnífsstungu á Akureyri Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Kajakræðarar í hættu hífðir upp Fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga á Litla-Hrauni Gekk berserksgang og olli tjóni á þremur bifreiðum Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Bíll alelda á Hellisheiði Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Bjóða óperumuni fala á menningarnótt í von um framhaldslíf Ber á því að ekið sé á sauðfé á Vesturlandi Sjálfstæðisflokkurinn í „meiriháttar vandræðum“ Sóttu veikan ferðamann í éljagangi og fimm metra öldum Hnífstunguárás á Akureyri og vandræði hjá Sjálfstæðisflokknum Fimm í fangaklefa þegar mest lét í Eyjum Ekki talinn í lífshættu eftir hnífsstungu á Akureyri í nótt Mátti litlu muna að eldur í gámi bærist í hús Sjá meira