Lífið

Guðjón og Brynjar fara yfir umdeildan þátt af Tinderlauginni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skrautlegur þáttur sem þeir félagarnir tóku fyrir.
Skrautlegur þáttur sem þeir félagarnir tóku fyrir.

Þeir Guðjón Smári Smárason og Brynjar Ingi halda áfram að renna í gegnum Tinderlaugina og greina þættina af sinni snilld.

Það gerður þeir á dögunum eins og Vísir greindi frá en nú var komið að því að fara yfir mjög umdeildan þátt.

Vanalega halda þeir Guðjón og Brynjar úti hlaðvarpinu Alvarleikinn þar sem þær ræða ýmis málefni og gera oft á tíðum grín að viðfangsefninu.

Í nýjasta þættinum tóku þeir stefnumótaþáttinn Tinderlaugina fyrir. Þeir horfðu saman á tvo þætti með og sýna fylgjendum sínum viðbrögð þeirra við þættinum.

Það má með sanni segja að margt í þættinum fékk þá félaga til að skella upp úr og oft á tíðum sprungu þeir hreinlega úr hlátri.

Hér að neðan má sjá nokkuð skrautlega samantekt og gangrýni á Tinderlaugina en þættirnir eru sýndir á Instagram.

Á dögunum varð keppandi 2 að svara fyrir sig eins og greint var frá hér á Vísi en hann þótti nokkuð dónalegur. Keppandi númer 1 var það drukkinn í þættinum að skipta þurfti honum út og kom inn annar keppandi í staðinn.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.