Lífið

Ný stikla úr sjónvarpsþáttunum Fortitude

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Mynd/Skjáskot
Ný stikla úr sjónvarpsþáttunum Fortitude var frumsýnd í gær. Tökur á þættinum fóru fram á Eskifirði í fyrra en í aðalhlutverkum eru þau Stanley Tucci, Sofie Gråbøl og Michael Gambon.

Þættirnir gerast í smábænum Fortitude sem talinn er vera einn öruggasti staður í heimi þar til vísindamaður í bænum er myrtur og allir liggja undir grun. Glæpurinn setur allt á annan endann í bænum og enginn er óhultur.

Fortitude er samstarfsverkefni sjónvarpsstöðvanna Sky Atlantic í Bretlandi og Starz í Bandaríkjunum en sýningar á þáttunum hefjast í byrjun næsta árs.


Tengdar fréttir

Fortitude sýnd um allan heim

Sjónvarpsserían er talin ein af heitustu söluvörunum á kaupráðstefnunni MIPCOM í Frakklandi.

Stórstjörnur á leiðinni til landsins

Tökur á fyrstu seríu af sjónvarpsþáttunum Fortitude munu hefjast hér á landi í febrúar á næsta ári en þættirnir eru samstarfsverkefni sjónvarpsstöðvanna Sky Atlantic í Bretlandi og Starz í Bandaríkjunum. Alls verða teknir upp þrettán þættir og fara tökur aðallega fram á Reyðarfirði og Eskifirði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.