Handbolti

Óskar Bjarni: Frábær leikur

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari Vals.
Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari Vals. Mynd/Vilhelm
Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari Vals var ánægður með leik síns liðs gegn FH í Meistarakeppni HSÍ í kvöld þrátt fyrir að tapa í vítakeppni.

„Þetta sýnir enn og aftur að þetta sé þjóðaríþrótt okkar Íslendinga. Tvíframlent og vítakeppni er það skemmtilegasta sem strákarnir fá. Frábær leikur,“ sagði Óskar Bjarni.

„Við eigum eftir að slípa suma hluti. Valdimar var að spila sinn fyrsta leik og átti að spila tvisvar tíu, það varð aðeins meira. Mér fannst við eiga að klára þá. Ég hélt þetta væri komið þegar Ingvar varði tvisvar þegar við vorum þremur færri en því miður.“

„Það var karakter hjá okkur að koma til baka í venjulegum leiktíma. Mér fannst við hafa yfirhöndina þegar á leið og það varð erfiðara hjá þeim að skora.“

Valsmenn virkuðu ryðgaðir framan af leik og það var í raun ekki fyrr en í seinni hálfleik venjulegs leiktíma að þeir fóru að berja almennilega frá sér.

„Við byrjuðum í 3-2-1, það voru mín mistök. Menn voru óöruggir í því og ég tek það á mig. Eftir að fórum í 6-0 vörn og breyttum áherslum vorum við góðir. Þetta eru miklar skyttur og miklir skotmenn sem voru heitir. FH er með gott lið og við náðum að þétta okkur. Við fengum hraðaupphlaup með markvörslunni.“

Sturla Ásgeirsson sem hafði nýtt færi sín mjög vel í leiknum klikkaði úr síðasta vítinu en Óskar sá bara jákvæðu hliðarnar við það. „Er ekki best að það sé reynslubolti sem klikkar frekar en einhver 18 ára pjakkur. Hann er með breytt bak og þolir þetta. Eru það ekki líka alltaf kóngarnir sem klikka í svona vítum, eins og Beckham og þessir bestu. Hann er kominn í ágætis hóp,“ sagði léttur Óskar að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×