Nýliðar Fjölnis slógu Keflavík út og Stjarnan afgreiddi Val | Öruggt hjá Borgnesingum í Hellinum Anton Ingi Leifsson skrifar 20. janúar 2020 20:59 Úr leik Fjölnis í vetur en þeir eru komnir í undanúrslitin í Geysisbikarnum. vísir/bára
Nýliðar Fjölnis í Dominos-deild karla eru spútniklið vetrarins í Geysisbikarnum en þeir eru komnir í undanúrslit eftir sigur á Keflavík í kvöld, 106-100. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik. Keflavík var yfir eftir fyrsta leikhlutann en heimamenn í Fjölni leiddu svo í hálfleik 50-44. Þrátt fyrir áhlaup í síðari hálfleik náðu Keflvíkingar aldrei að jafna metin og nýliðarnir eru þar af leiðandi komnir í Höllina eftir sex stiga sigur. Srdan Stojanovic skoraði 35 stig fyrir Fjölni og var þar að auki með sjö stoðsendingar. Jere Vucica bætti við 20 stigum. Dominykas Milka skoraði 28 stig fyrir Keflvíkinga og Hörður Axel Vilhjálmsson bætti við 22 gegn uppeldisfélagi sínu.Stjarnan er einnig komið í undanúrslitin eftir þrettán stiga sigur á liði Vals, 78-65, er liðin mættust í Garðabæ í kvöld. Nikolas Tomsick skoraði 21 stig, gaf sex stoðsendingar og tók fimm fráköst í liði Stjörnunnar en Ægir Þór Steinarsson var næstur með 12 stig, níu fráköst og átta stoðsendingar. Í liði Vals var það Philip B. Alawoya sem var stigahæstur með 21 stig og sjö fráköst. Naor Sharabani kom næstur með 17 stig og 14 fráköst. Í kvennaflokki var einnig einn leikur í 8-liða úrslitunum í kvöld en úrvalsdeildarlið Skallagríms vann öruggan sigur á 1. deildarliði ÍR, 86-51. Nína Jenný Kristjánsdóttir var stigahæst í liði ÍR með ellefu stig og Arndís Þóra Þórisdóttir bætti við tíu stigum. Hjá gestunum skoraði Keira Breeanne Robinson 21 stig, tók sjö fráköst og gaf sex stoðsendingar. Mathilde Colding-Poulsen og Maja Michalska gerðu tólf stig hvor.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sjá meira