Hlutur ráðstöfunartekna heimilanna af tekjum mun minni en áður Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 16. október 2017 10:13 Ráðstöfunartekjur á mann jukust um 8,7 prósent milli ára og kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann jókst um 6,9 prósent að því er segir í Hagsjánni. Eru tölurnar enn ein staðfestingin á mikilli aukningu rauntekna hér á landi á síðustu árum. Vísir/Anton Brink
Sá hluti tekna sem heimilin ráðstafa sjálf hefur minnkað hlutfallslega á síðustu rúmum 20 árum. Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans í dag þar sem lagt er út af tölum Hagstofunnar frá því í liðinni viku. Þær tölur sýndu að ráðstöfunartekjur heimilanna jukust um 10,2 prósent milli áranna 2015 og 2016. Ráðstöfunartekjur á mann jukust um 8,7 prósent milli ára og kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann jókst um 6,9 prósent að því er segir í Hagsjánni. Eru tölurnar enn ein staðfestingin á mikilli aukningu rauntekna hér á landi á síðustu árum. „Til þess að reikna út ráðstöfunartekjur eru eigna- og tilfærsluútgjöld dregin frá heildartekjum. Meðal þessara útgjalda eru t.d. afborganir af lánum, skattar og iðgjöld til lífeyrissjóða. Ráðstöfunartekjurnar eru því eðli málsins samkvæmt lægri en heildartekjur og þær eru oft birtar sem tekjur á mann þar sem þjóðinni fer sífellt fjölgandi. Á tímabilinu 1994-2016 hafa ráðstöfunartekjur að meðaltali verið um 64% heildartekna. Hlutfall ráðstöfunartekna af heildartekjum hefur hins vegar lækkað mikið á tímabilinu, var um 70% í upphafi þess en um 62% á árinu 2016. Sé þróun eigna- og tilfærsluútgjalda skoðuð má sjá að hækkun þeirra hefur verið svipuð á öllu tímabilinu, en þróunin innan tímabilsins hefur verið mjög mismunandi. Eignaútgjöldin jukust mun meira en tilfærsluútgjöldin allt fram til ársins 2009, en þau lækkuðu verulega að raungildi fram til ársins 2012. Tilfærsluútgjöldin lækkuðu mikið að raungildi milli 2007 og 2009 en hafa aukist nokkuð síðan og í takt við tekjurnar síðustu árin,“ segir í Hagsjá Landsbankans. Hluti tekna sem heimilin ráðstafa sjálf hefur því minnkað hlutfallslega á árunum 1994 til 2016. Var minnkunin hröðust á síðustu árum 20. aldar og svo í kringum hrunið sem varð hér 2008. „Á öðrum tímabilum hefur þróunin verið stöðugri og frekar upp á við frá árinu 2010. Hluti af því sem dregst frá tekjum heimilanna er lífeyrissparnaður sem kemur til ráðstöfunar seinna, þegar hann er tekinn út. Stór hluti fer einnig í skatta til hins opinbera sem þýðir með öðrum orðum að við ráðstöfum þeim tekjum sameiginlega í stað þess að það gerist innan hvers heimilis. Sú þróun ætti að sjást í aukinni samneyslu, en þróun þeirrar stærðar sýnir að hún hefur einnig farið minnkandi sem hlutfall af landsframleiðslu. Hlutur samneyslu af landsframleiðslu fór reyndar vaxandi í takt við hlutfallslega minnkun ráðstöfunartekna fyrri hluta tímabilsins, en á síðustu árum hafa farið saman hlutfallslega minni ráðstöfunartekjur og hlutfallsleg minnkun samneyslu. Skattgreiðendur virðast því fá minna fyrir snúð sinn en áður,“ segir í Hagsjánni sem lesa má í heild sinni hér.
Mest lesið Horfðu á hallærislegt sjónvarpsefni og úðuðu í sig bragðaref Atvinnulíf Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Viðskipti innlent Ellefu milljarða lán til að byggja upp veitukerfi og verjast loftslagsvá Viðskipti innlent Salzburg úr sögunni hjá Play Viðskipti innlent Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka Viðskipti innlent Frá RÚV til Coca-Cola Viðskipti innlent Fríar skólamáltíðir séu skammgóður vermir Viðskipti innlent Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu Atvinnulíf „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ Atvinnulíf Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ellefu milljarða lán til að byggja upp veitukerfi og verjast loftslagsvá Salzburg úr sögunni hjá Play Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Fríar skólamáltíðir séu skammgóður vermir Frá RÚV til Coca-Cola Verulega minni verðbólga Mun leiða ferskvatnseldi hjá First Water Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Spá enn einum fundinum án breytingar Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Munu fljúga til Nashville næsta sumar Rúv tapað nærri hálfum milljarði á árinu Átta sagt upp hjá Arion banka Bein útsending: Ársfundur Orkustofununar á Akureyri Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Icelandair fyrsta samstarfsflugfélag bandarísks risa Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Fjármálaeftirlitið samþykkir samruna Landsbankans og TM Verður framkvæmdastjóri á hugbúnaðarsviði Origo Geta veitt fyrirtækjum hagstæðari lán Telur vaxtahækkanir viðskiptabankanna brattar Bein útsending: Haustráðstefna Stjórnvísi – Snjöll framtíð Þrálát verðbólga og hægari vöxtur geti skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið Hrönn, Viktor og Þórdís til Varðar Ísak Einar til Samtaka atvinnulífsins Andri aðstoðarframkvæmdastjóri Júní Sjá meira