Bílar

Skotheldur Alfa Romeo frá ítölskum mafíuforingja seldur á uppboði

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Skotheldi Alfa Romeo Alfetta sem Muto átti í meira en 30 ár.
Skotheldi Alfa Romeo Alfetta sem Muto átti í meira en 30 ár.

Bíllinn var í eigu Francesco Muto frá Cetraro á Ítalíu, Muto var leiðtogi Ndrina Muto flokknum. Muto var handtekinn árið 2016, fyrir hefðbundna mafíu-glæpi.

Muto var handtekinn fyrir eiturlyfjasmygl meðal annarra afbrota. Hann hafði þangað til látið lítið fyrir sér fara í því sem virtist látlaus hvítur Alfa Romeo Alfetta.

Bíllinn er útbúinn með tæplega 600 kílóa brynvörn, styrktum lásum, skotheldum felgum og dekkjum. Þá eru rúðurnar sérstaklega styrktar.

Innra rýmið í bílnum.

Þá er bíllinn útbúinn með fjarskiptabúnaði frá níunda áratugnum ef ske kynni að Muto lenti í vandræðum.

Bíllinn var settur á sölu á heimasíðunni Bring a Trailer. Hann er ekinn 12.875 km. og undirritun Muto á upprunalegum skráningarskjölum fylgir með. Bíllinn sem hefur tengsl við mafíuforingja og það nýlega seldist á einungis um 1,7 milljón króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×