Lífið

Bein útsending: Íslensku hljóðbókaverðlaunin

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Þetta er í fyrsta skipti sem verðlaunin eru afhent.
Þetta er í fyrsta skipti sem verðlaunin eru afhent. Mynd/Storytel

Íslensku hljóðbókaverðlaunin, Storytel awards fara fram í fyrsta sinn í Hörpu í kvöld. Streymt verður frá afhendingunni í beinni útsendingu hér á Vísi klukkan 20:00. Tilnefndar eru 20 hljóðbækur í alls fjórum flokkum en þeir eru almennar bækur, barna- og ungmennabækur, glæpasögur og skáldsögur. Lista yfir tilnefningarnar má finna hér neðar í fréttinni.

Til stóð að verðlaunahátíðin yrði haldin í apríl en vegna Covid-19 var henni slegið á frest í um mánaðartíma. Á hátíðinni mun Lilja B. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra ávarpa gesti og afhenda verðlaun í flokki barna- og ungmennabóka. Frú Eliza Reid mun afhenda sérstök heiðursverðlaunfyrir frumkvöðlastarf í þágu hljóðbókmennta. Verðlaunagripurinnsem sigurvegarar hljóta er glæsilegt glerlistaverk eftir sænska listamanninn Ludvig Löfgren.

Tilnefndar bækur fóru fyrir fagdómnefndir undir forystu Einars Kárasonar rithöfundar, Elvu Óskar Ólafsdóttur leikkonu og Sævars Helga Bragasonar en dómnefndir höfðu það að leiðarljósi að líta heildstætt á hvert verk þar sem vandaður lestur á góðu ritverki getur bætt miklu við upplifun lesandans. Því verða ekki aðeins rithöfundar verðlaunaðir heldur einnig lesarar hljóðbókanna og meðal tilnefndra lesara í ár er fjöldi landsþekktra leikara sem ljáð hafa sögupersónum rödd sína á undangengnu ári.

Eftirfarandi rithöfundar, þýðendur og lesarar hljóta tilnefningu fyrir verk sín til Íslensku hljóðbókaverðlaunanna, Storytel Awards:

Barna- og ungmennabækur

Nýr heimur – ævintýri Esju í borginni eftir Sverri Björnsson í lestri Álfrúnar Helgu Örnólfsdóttur

Vetrargestir eftir Tómas Zoëga í lestri Sölku Sólar Eyfeld

(lang) Elstur í leynifélaginu eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur í lestri Sigríðar Lárettu Jónsdóttur

Litlu álfarnir og flóðið mikla eftir Tove Jansson, í þýðingu Þórdísar Gísladóttur og lestri Friðriks Erlingssonar

Harry Potter og blendingsprinsinn eftir J.K. Rowling, í þýðingu Helgu Haraldsdóttur og lestri Jóhanns Sigurðarsonar

Glæpasögur

Brúðan eftir Yrsu Sigurðardóttur í lestri Þorvaldar Davíðs Kristjánssonar

Marrið í stiganum eftir Evu Björg Ægisdóttur í lestri Írisar Tönju Flygenring

Gullbúrið eftir Camillu Läckberg, í þýðingu Sigurðar Salvarssonar og lestri Þórunnar Ernu Clausen

Búriðeftir Lilju Sigurðardóttur í lestri Elínar Gunnarsdóttur

Þorpið eftir Ragnar Jónasson í lestri Írisar Tönju Flygenring

Skáldsögur

Kópavogskrónika eftir Kamillu Einarsdóttur í lestri Þórdísar Bjarkar Þorfinnsdóttur

Svikarinn eftir Lilju Magnúsdóttur í lestri Þórunnar Ernu Clausen

Gríma eftir Benný Sif Ísleifsdóttur í lestri Þórdísar Bjarkar Þorfinnsdóttur

Flórída eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur í lestri höfundar

Fjöllin eftir Söndru B. Clausen í lestri Álfrúnar Helgu Örnólfsdóttur

Almennar bækur

Vertu úlfur: wargus esto eftir Héðinn Unnsteinsson í lestri Hjálmars Hjálmarssonar

Á eigin skinni eftir Sölva Tryggvason í lestri höfundar

Ég gefst aldrei upp eftir Borghildi Guðmundsdóttur í lestri Lilju Katrínar Gunnarsdóttur

Geðveikt með köflum eftir Sigurstein Másson í lestri höfundar

Hornauga eftir Ásdísi Höllu Bragadóttur í lestri höfundar og Þórunnar Hjartardóttur






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.