Mánudagsstreymi GameTíví fer fram í kvöld, eins og önnur kvöld þegar fullskipað lið mætir til Verdansk. Búast má við því að strákarnir kíki í neðanjarðarbyrgi, reyni að slá met og ná þremur W (sigrum).
Dói mun leiða hópinn að venju, Tryggvi í sebra, Kristján reynir að finna þyrlu til að brotlenda og Óli týnist. Fastir liðir eins og venjulega.
Strákarnir byrja klukkan átta og má fylgjast með streymin hér að neðan.