Lífið

Vand­ræða­gemsinn Mongús vonast eftir öðru tæki­færi í Hvera­gerði

Sylvía Hall skrifar
Villikettir náðu loksins í skottið á Mongúsi eftir ítrekaðar tilraunir. Þar fékk hann þá aðhlynningu sem hann þurfti og mun hann nú reyna að verða fyrirmyndarborgari í Hveragerði eftir að hafa verið til mikilla vandræða undanfarin ár.
Villikettir náðu loksins í skottið á Mongúsi eftir ítrekaðar tilraunir. Þar fékk hann þá aðhlynningu sem hann þurfti og mun hann nú reyna að verða fyrirmyndarborgari í Hveragerði eftir að hafa verið til mikilla vandræða undanfarin ár. Facebook

Kötturinn Mongús hefur ekki átt sjö dagana sæla undanfarin ár. Hann hefur verið á vergangi í mörg ár eftir að eigandi hans féll frá, átti það til að hrella aðra ketti í bænum og ætlaði sér að ná stjórn á bænum. Saga Mongúsar er sögð í Facebook-færslu á síðu Villikatta.

Sjálfboðaliðar Villikatta höfðu lengi reynt að ná honum, sem gekk þó erfiðlega fyrst en hafðist að lokum þegar þeir fengu veður af því að Mongús ætti samastað hjá fólki í Hveragerði sem gaf honum mat og skjól. Hann fékk þó þá aðstoð sem hann þurfti hjá Villiköttum, enda kom í ljós að hann var með miklar sýkingar í kinnum, rifinn í kringum eyru og nef, með brotna tönn og tannpínu.

„Nú er Mongús orðinn geldur, bólusettur, ormahreinsaður, örmerktur og búið að fjarlægja tönnina og gera að sárum hans. Hann var hjá VILLIKÖTTUM í mánuð, feldurinn var kembdur mörgum sinnum á dag og hann náði að þyngjast meðan á dvölinni stóð. Þegar Mongúsi fór að líða betur malaði hann sæll, snyrti sig stanslaust og vafðist um fætur manns,“ segir í færslu Villikatta.

Mongús var alræmdur í bænum en að sögn Villikatta þekktu margir til hans og vissu um aðstæður hans. Í ljósi þess hversu miklir dýravinir Hvergerðingar eru voru því margir sem gáfu honum mat þegar hann leitaði til þeirra.

Fólkið sem hafði hugsað um Mongús ætlar nú að veita honum húsaskjól og gera hann aftur að heimiliskisu. Aðeins tíminn muni leiða í ljós hvort hann sé tilbúinn að verða fyrirmyndarborgari í Hveragerði en nú sé komið að Hvergerðingum að gefa honum annan séns.

„Batnandi kisum er best að lifa. Og allir eiga skilið annað tækifæri,“ segir í færslunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.