„Sem foreldri hefur maður alltaf áhyggjur af mótlæti sem barnið manns mun mæta. En vonandi mun Kári Zikora alast upp í upplýstari heimi“, segir Helgi Valur, tónlistarmaður, í viðtali við Vísi um fordóma og mismunun.
Helgi Valur og Adanna giftu sig síðasta sumar og eignuðust sitt fyrsta barn, Kára Zikora, í byrjun september það sama ár.
Adanna fæddist í Bretlandi en er ættuð frá Nigeríu og er af Igbo ættbálknum. Helgi segir að sem par af ólíkum kynþætti hafi þau ekki mætt mikilli mismunun en þau finni þó fyrir fordómum í garð Adönnu. Í gamni segir Helgi að faðir Adönnu hafi ekki verið par hrifin þegar hann heyrði af því að dóttir hans væri að hitta hvítan strák.
Eftir að hann heyrði svo að ég væri tónlistarmaður og hljómaði svolítið eins og David Bowie þá tók hann mig í sátt, haha! Svo þegar ég bað hann um hönd dóttur hans á tungumáli hans ættbálks (Igbo) var hann mjög ánægður með mig.
Helgi segir Adönnu ekki beint hafa fundið fyrir fordómum á Íslandi en það sé vissulega mikill munur á viðhorfi fólks á Íslandi og viðhorfi fólks í London þar sem þau búa.
„Á Íslandi tekur fólk meira eftir því þegar þú ert í inter-racial sambandi en í London er það ekkert tiltökumál. Þegar ég fór með Adönnu á ball í Hveragerði kom fólk til hennar og hreinlega starði á hana. En það var samt ekki með neikvæðar athugasemdir heldur sagði henni að hún væri svo falleg. Það er auðvitað bara jákvætt, en sýnir kannski hvað við erum óvön ólíkum kynþáttum á Íslandi“.
„Nokkrum árum áður mætti ég þó miklum fordómum þegar ég fór með eina vinkonu mína sem var dökk á hörund út á lífið. Þá kom til mín maður og honum fannst hann knúinn til að tjá sig“.
„Þessi er í vitlausum lit“, hvíslaði hann að mér. Ég vona innilega að rasismi sé ekki jafn viðtekinn í dag á Íslandi eins og hann var og að fólk sé ekki að láta svona hluti út úr sér.
Hvítt fólk réttlætir sinn eigin rasisma
Helgi segir að þó að sumt sé kannski ekki illa meint þá kjósi sumir Íslendingar stundum að vera semi-ignorant (e. hálf fáfrótt).
„En auðvitað einskorðast það ekki við Íslendinga. Ég held að flest hvítt fólk réttlæti sinn rasisma á einhvern hátt“.
Þegar við tölum um þróun kynþáttafordóma í heiminum í kjölfarið á morði George Floyd, segir Helgi Adönnu ekki endilega vera bjartsýna á það að hlutirnir muni breytast.
Ég vona að þetta sé ekki allt bara partur af eilífri endurkomu hins sama. Adanna er ekki bjartsýn og eins vongóð og ég um að hlutirnir breytist en við vonum þó að þetta sé að mjakast í rétta átt.
„Við erum eðlilega í sjokki yfir morðinu á George Floyd, eins og allur heimurinn líklega. En það er spurning hvort að það breytist eitthvað undir niðri. Það er aftur á móti gott að fylgjast með því að þessir fordómar eru að koma meira upp á yfirborðið. En svo þarf þetta að breytast, þar er helsta áskorunin“.
Þrátt fyrir að Helgi og Adanna upplifi ekki mikla fordóma sem par á Adanna þó margar sögur af fordómum sem hún kallar stundum subtle rasism.
„Fólk á vinnustaðnum hennar skilur til dæmis ekkert af hverju það má ekki bara vaða í það að snerta hárið á svörtu fólki eða setja á sig Black-Face. Þegar fólk í vinnunni hennar segist hafa klætt sig upp sem svört manneskja hefur Adanna stundum sagt: „Ég hef aldrei klætt mig upp sem hvít manneskja, afhverju ætti ég að gera það?”
Þarf að passa sig að vera ekki „The angry black woman“
Helgi segir að Adanna hefi ósjaldan þurft að þola það í vinnunni sinni að hvítt fólk fái frekar hrós og þá stundum fyrir það sem hún hefur innt af hendi.
Hún hefur þurft að lifa við fáfræði vinnufélaganna og passa sig á að vera ekki álitin „The angry black woman“.
Þegar talið berst að næturlífinu í London segir Helgi að Adanna og systir hennar hafi þurft að venjast hlutum sem hvítt fólk þurfi aldrei að hugsa um.
„Eitt sinn þegar við ætluðum að fara saman á klúbb í London var okkur ekki hleypt inn. Við vorum með miða og búin að panta borð en okkur var sagt að við þyrftum að borga fyrir borðið af því staðurinn væri fullur“.
Svo þurftum við að horfa á það þegar öllum öðrum var hleypt inn, öllu hvíta fólkinu. Systir Adönnu, sem var með okkur þetta kvöld, var mjög reið en þetta var greinilega eitthvað sem þær þekkja vel frá klúbbalífinu í London.
Svörtum konum í hóp er ekki hleypt inn
Helgi segir einnig að Adanna þurfi því miður að forðast það að fara með hópi af svörtum konum út á lífið. Því ef þær eru margar svartar konur saman í hóp þá verður þeim ekki hleypt inn.
Þetta er eitthvað sem ég sem hvítur maður hef aldrei þurft að hugsa um!
Nú eigið þið barn saman sem er af blönduðum kynþætti, hafið þið áhyggjur af því að hann muni upplifa mismunun eða fordóma í framtíðinni?
„Sem foreldri hefur maður alltaf áhyggjur af mótlæti sem barnið manns mun mögulega mæta. En hann er blanda af öllu því besta og vonandi mun Kári Zikora alast upp í heimi sem er betur upplýstur“.