Skoðun

Rugl eða redding? - Opnun landsins 15. júní

Ýmir Björgvin Arthúrsson skrifar

Að galopna landið 15. júní er mögulega galið. Sagt er að í „besta falli“ komi hingað allt að 2.000 erlendir ferðamenn á dag. Það eru 180.000 gestir alls á 90 dögum.

Af þessum gestum er óumflýjanlegt að einhverjir þeirra séu smitaðir af kórónuveirunni, hvort sem hún greinist við komu eða ekki. Það þýðir að sjálfsögðu að landið verður vart veiru-frítt. Í besta falli munu einhverjir fara í sóttkví. Miklar líkur eru þá á dreifingu smita, þar sem engar hömlur eru nú, ólíkt þegar við náðum að verjast veirunni.

Í versta falli mun veiran dreifa sér margfalt hraðar en áður, þegar við gættum að okkur, og við erum komin byrjunarreit með tilheyrandi álagi á heilbrigðiskerfið, samkomubanni og lokunum veitingastaða, hótela, o.þ.h. Þá er „íslenska ferðasumarið“ ónýtt og allir tapa, almenningur jafnt sem þeir sem starfa í ferðaþjónustu.

Ein leið væri að opna landið eingöngu fyrir skipulagða hópa erlendis frá. Skipulagðir hópar yrðu í fylgd með íslenskum leiðsögumönnum frá lendingu til brottfarar þannig að hægt sé að rekja allar ferðir og lágmarka skaðann komi upp smit í hópnum þar sem hér um að ræða lokuð mengi sem auðveldara er að eiga við. Þar að auki eru skipulagðir hópar, stórir sem smáir, í fylgd með íslenskum leiðsögumönnum oftar en ekki þeir sem meira skilja eftir í hagkerfinu. Við bjóðum velkomna ferðamenn sem koma á okkar forsendum eingöngu.

Er það nokkuð svo slæmt að fylla hótel um allt land af Íslendingum meðan faraldurinn geisar utan eyjunnar fögru og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin segir hann fara versnandi og bóluefni enn ófundið?

Hér eigum við að setja öryggi okkar og gesta ofar áherslum á fjölda. Er það áhættunnar virði að fá mögulega 180.000 erlenda gesti í sumar og fara á byrjunarreit með tilheyrandi samkomu- og ferðabönnum. Er þá ekki verr farið af stað en heima setið ? Sérstaklega fyrir aðila í ferðaþjónustu, sem bíða spenntir eftir ferðaþyrstum íslenskum fjölskyldum í sumar?

Höfundur er frumkvöðull og Gourmet Guide.




Skoðun

Sjá meira


×