Bílar

Ford frestar frumsýningu á Bronco til að forðast afmælisdag O.J. Simpson

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nýr Ford Bronco
Nýr Ford Bronco Vísir/Autocar

Ford hefur tilkynnt að breyting verði á frumsýningardegi nýs Bronco sem beðið hefur verið með eftirvæntingu. Upphaflegur frumsýningardagur, 9. júlí er afmælisdagur O.J. Simpsons, einhvers frægasta Bronco farþega heims.

Upphaflega tilkynnti Ford frumsýninguna meðal annars á Twitter og þá stóð til að hún færi fram 9. júlí.

Nú hefur henni verið frestað til 13. júlí vegna þess að O.J. Simpson á afmæli 9. júlí. Í færslu Ford á Twitter vegna þessa sagi að fyrri dagsetningin hafi verið algjör tilviljun en vegna tengingarinnar verði dagsetningunni breytt.

Tengingin við O.J. Simpson er afar sterk enda er flótti hans undan lögreglu á hvítum Bronco flestum kunnur. Gefin hafði verið út handtökuskipun á hendur Simpson vegna þess að honum var gefið á sök að hafa myrt fyrrum eiginkonu sína, Nicole Brown Simpson og vin hennar Ron Goldman árið 1994. Þegar handtaka átti Simpson flúði hann undan lögreglu á hvítum Ford Bronco. Al Cowlings fyrrum liðsfélagi Simpson ók bílnum í hægum eltingarleik við lögreglu í gegnum Los Angeles. Eltingaleikurinn var sýndur í beinni útsendingu í sjónvarpi.

Það væri skrítið ef Ford væri viljandi að tengja sig við þennan atburð, en líklega er um mannleg mistök að ræða. Simpson var ákærður en sýknaður af morðunum.

„Mín fyrstu viðbrögð voru bara að hugsa hvort þetta væri grín, hvort þetta ætti að vera fyndið?,“ sagði systir Nicole Brown Simpson, Tanya Brown sagði í viðtali við Detroit Free Press.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×