Fótbolti

Árni skoraði gegn risanum og sigur hjá Ögmundi er þrjú rauð fóru á loft

Anton Ingi Leifsson skrifar
Árni Vilhjálmsson var á skotskónum í dag.
Árni Vilhjálmsson var á skotskónum í dag.

Árni Vilhjálmsson skoraði af vítapunktinum er FC Kolos Kovalivka tapaði 2-1 fyrir Dynamo Kiev, risanum í úkraínska boltanum, er liðin mættust í Kiev í dag.

FC Kolos Kovalivka fékk vítaspyrnu á 53. mínútu og gat komist yfir en Andrii Bogdanov brást bogalistin. Önnur vítaspyrna var dæmt á 64. mínútu en þá til heimamanna. Viktor Tsygankov skoraði úr henni.

Árni jafnaði svo úr þriðju vítaspyrnu leiksins á 69. mínútu en vítaspyrnudramað hélt áfram er fjórða vítaspyrnan var dæmd á 87. mínútu. Carlos De Pena tryggði þá Dynamo Kiev sigurinn.

Dynamo Kiev er í 2. sæti deildarinnar með 55 stig en FC Kolos Kovalivka er í 6. sætinu með 23 stig.

Ögmundur Kristinsson stóð í marki Larissa sem vann 3-1 sigur á NFC Volos. Þrjú rauð spjöld fóru á loft í leiknum og fjöldinn allur af gulum spjöldum.

Larissa er í 3. sæti deildarinnar með 33 stig en NFC í 5. sætinu með 30 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×