Sport

Katrín Tanja tekur á því: Ég dó næstum því eftir þessa æfingu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Katrín Tanja Davíðsdóttir þurfti langan tíma til að jafna sig eftir æfinguna sem var reyndi mikið á hana.
Katrín Tanja Davíðsdóttir þurfti langan tíma til að jafna sig eftir æfinguna sem var reyndi mikið á hana. Skjámynd/Instagram

Íslenska CrossFit konan Katrín Tanja Davíðsdóttir er að taka á því þessa dagana og sýnir aðdáendum sínum frá því á miðlum sínum.

Katrín Tanja Davíðsdóttir stóð í ströngu í síðustu mánuðum í baráttunni fyrir framtíð CrossFit íþróttarinnar en hún hefur undanfarnar vikur sett allt á fullt í æfingum þar sem hún hefur aðstöðu hjá þjálfara sínum í Bandaríkjunum.

Það lítur út fyrir að okkar kona sé að undirbúa sig fyrir einhvers konar keppni og vonandi verður sú keppni heimsleikarnir í CrossFit nú þegar nýr eigandi hefur tekið við hjá CrossFit samtökunum.

Katrín Tanja sagðist ekki ætla að keppa á heimsleikunum á meðan ætti CrossFit og sama yfirstjórn réði ríkjum en Greg Glassman seldi svo CrossFit samtökin til Eric Roza. Síðan þá hefur storminn lægt í CrossFit heiminum enda vinnur umræddur Eric Roza markvisst af því að setja upp framtíðarútgáfu CrossFit í nánu samstarfi við þá sem koma að íþróttinni.

Katrín Tanja hefur ekki verið með neinar yfirlýsingar síðustu vikur en einbeitt sér þeim mun meira að æfingunum.

Fyrr í vikunni sýndi Katrín Tanja frá því þegar þjálfari hennar Ben Bergeron var að herða hana upp með því að kasta yfir hana sandi í miðri þolæfingu hennar. Að þessu sinni setti hann saman svakalega æfingu fyrir Katrínu sem reyndi verulega á hana.

Katrín Tanja sýndi ekki aðeins frá endakafla æfingarinnar heldur sagði einnig frá því hvað hún gerði á þessum rosalegu fimm mínútum.

Á þeim átti Katrín að ná 30 skiptum af jafnhöttun með 43 kíló, 30 skiptum af snörum með 43 kíló, 30 skiptum af hnébeygju og axlarpressu með 43 kíló, eyða 30 kaloríum í róðrarvélinni, eyða 30 kaloríum á þrekhjóli og loks eyða kaloríum í skíðavél.

Það er því kannski ekkert skrýtið að hún hafi verið búin á því og þurft 40 mínútur til að jafna sig.

„Hér er ég næstum því að deyja á æfingunni í dag. Þetta var sjötti og síðasti hlutinn og ég eyddi síðan 40 mínútum á einmitt þessu horni að jafna mig,“ skrifaði Katrín Tanja í Instagram færslu sinni.

Hér fyrir neðan má sjá þennan síðasta hluta af æfingu Katrínar Tönju og hvernig hún var gjörsamlega útkeyrð eftir þessa sex krefjandi æfingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×