Lífið

Veit ekkert leiðinlegra en að tapa í fótbolta

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Amelía Rún Pétursdóttir er stoltust af því að hafa komist aftur af stað í fótboltanum eftir erfið meiðsli.
Amelía Rún Pétursdóttir er stoltust af því að hafa komist aftur af stað í fótboltanum eftir erfið meiðsli. Aðsend mynd

Miss Universe Iceland 2020 fer fram í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ 23. október og verður keppnin í beinni útsendingu hér á Vísi. Keppnin átti að fara fram þann 21. ágúst en í gær tilkynnti Manuela Ósk Harðardóttir að keppninni væri frestað vegna útbreiðslu kórónuveirufaraldursins hér á landi. 

Alþjóðleg dómnefnd velur fulltrúa Íslands sem tekur síðan þátt í Miss Universe en ekki hefur verið staðfest hvar eða hvenær sú keppni fer fram. Næstu vikur verður kynning á keppendum hér á Vísi.

Amelía Rún Pétursdóttir er knattspyrnukona og ætlar sér að verða einkaþjálfari. 

Morgunmaturinn: 

Hafragrautur

Helsta freistingin: 

Nóa kropp, liggjandi uppi í rúmi að horfa á Love Island

Hvað ertu að hlusta á: 

Mest íslenska tónlist, hlusta líka á podcast eins og morðcastið.

Hvað sástu síðast í bíó: 

IT, Chapter 2

Hvaða bók er á náttborðinu þínu: 

Beloved

Hver er þín fyrirmynd: 

Mamma mín, lít alltaf upp til hennar

Hvað ætla ég að gera í sumarfríinu: 

Ég ætla vera i boltanum, keppa í Miss Universe Iceland og reyna ferðast eitthvað.

Amelía Rún Pétursdóttir tekur þátt í Miss Universe Iceland.Aðsend mynd

Uppáhaldsmatur: 

Uppáhaldsmaturinn minn er nautasteik og tacos

Uppáhaldsdrykkur: 

Pepsi

Hvað er frægasta manneskja sem þú hefur hitt: 

Manuela Ósk

Hvað hræðist þú mest: 

Býflugur og geitunga, get þær ekki.

Neyðarlegasta atvik sem þú hefur lent í: 

Skellti bílhurð á hendina á mér og puttabraut mig, þvílíkur klaufaskapur.

Hverju ertu stoltust af: 

Að ná að koma mér aftur í fótboltann eftir erfið meiðsl

Hefur þú einhvern leyndan hæfileika: 

Fljót að læra söng texta

Hundar eða kettir: 

Ég á tvo ketti og einn hund, bæði betra.

Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir: 

Tapa fótbolta leik, veit um ekkert leiðinlegra

En það skemmtilegasta: 

Spila fótbolta og vera með vinum.

Hverju vonast þú til að Miss Universe skili þér: 

Betra sjálfstrausti og sjálfsmynd, ný vináttutengsl og verða betri útgáfa af sjálfri mér.

Hvar sérðu þig eftir 5 ár: 

Einkaþjálfari hjá Reebok


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.