Sport

„Svipurinn þegar það er minna en mánuður í heims­leikana“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Það er gleði í Söru.
Það er gleði í Söru. mynd/instagram/sarasigmunds

Sara Sigmundsdóttir, ein af CrossFit stjörnum okkar Íslendinga, er full tilhlökkunar fyrir heimsleikunum í CrossFit.

Heimsleikarnir fara fram með öðruvísi sniði í ár því meira en mánuður mun líða á milli undanrásana og fimm manna úrslitanna.

Einungis 30 karlar og 30 konur munu keppa um sæti í lokaúrslitunum en undanrásirnar hefjast 18. september. Söru hlakkar til.

Ísland á að eiga þrjá keppendur í úrslitunum. Sara Sigmundsdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir voru búnar að tryggja sér farseðla í kvennaflokki og Björgvin Karl Guðmundsson í karlaflokki.

Anníe Mist Þórisdóttir var líka með sæti á heimsleikunum í ár en gaf það frá sér þegar hún fór í barnsburðarleyfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×