Sport

Anníe Mist byrjuð aftur: Ferðalagið til baka verður erfitt en þess virði

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Anníe Mist Þórisdóttir leyfði fylgjendum sínum á Instagram að fylgjast vel með sér á meðgöngunni og hún ætlar líka að sýna frá því hvernig henni gengur að koma til baka eftir barnsburðinn.
Anníe Mist Þórisdóttir leyfði fylgjendum sínum á Instagram að fylgjast vel með sér á meðgöngunni og hún ætlar líka að sýna frá því hvernig henni gengur að koma til baka eftir barnsburðinn. Mynd/Instagram

Íslenska CrossFit goðsögnin Anníe Mist Þórisdóttir gladdi sitt fólk á Instagram með að sýna þeim að hún sé byrjuð á löngu en um leið erfiðu ferðalagi sínu til baka inn í sportið sitt.

Anníe Mist Þórisdóttir varð móðir fyrir einni og hálfri viku og eins og hefur komið fram var fæðingin mjög erfið. Anníe Mist missti mikið blóð og þurfti hjálp við einföldustu hluti fyrstu dagana á eftir.

Þeir sem þekkja Anníe Mist vita hins vegar að þar fer mikil baráttukona sem kallar ekki allt ömmu sína. Anníe Mist hefur glatt fylgjendur sína á Instagram með því að sýna þeim að hún er byrjuð að hreyfa sig aftur.

Dóttir hennar, sem er strax orðin fræg í CrossFit heiminum sem Frederiksdottir, kom í heiminn mánudaginn 10. ágúst eða fyrir tíu dögum síðan.

„Dagurinn í dag var fyrsti dagurinn minn sem ég hreyfi mig eitthvað. Ferðalagið til baka verður erfitt en þess virði,“ skrifaði Anníe Mist Þórisdóttir á Instagram og þar mátti sjá myndir af henni gera léttar æfingar á dýnunni eins og sjá má hér fyrir neðan.

Eins og Anníe Mist sagði frá í færslu á Instagram síðu sinni þá var fæðingin henni mjög erfið, það erfiðasta sem þessi mikla afrekskona hefur gengið í gegnum á sinni ævi og þá er nú mikið sagt.

Hún kláraði sig í fæðingunni og átti mjög erfitt með allar hreyfingar þrátt fyrir að vera í frábæru formi eftir stífar æfingar á meðgöngunni.

Sumir fylgjendur hennar hafa smá áhyggjur að Anníe sé að byrja of snemma en það má lesa það úr því sem hún sýnir af sér á samfélagsmiðlum að hún ætlar að fara hægt og rólega af stað.

Anníe Mist æfði mikið nánast fram á síðasta dag meðgöngunnar þó auðvitað átti bumban eftir að hafa mikil áhrif á það sem hún gat gert.

Anníe Mist sýndi myndband af sér í CrossFit Reykjavík í gær en tók það fram að hún væri að fara rólega af stað.Skjámynd/Instagram

Anníe Mist er með bæði með myllumerkin „að njóta ferðalagsins“ og „eitt skref í einu“ sem eru góðar fréttir.

Það verður athyglisvert að sjá hvernig gengur hjá henni að koma til baka en hún hefur alltaf talað um það að ætla að keppa aftur í CrossFit eftir barnsburðarleyfið.

Hún var mætt aftur í CrossFit Reykjavík í gær og þar hefur örugglega rignt yfir hana hamingjuóskum frá æfingafélögum og öðrum sem þekkja þessa glaðlyndu og drífandi afrekskonu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×