Lífið

Gefur út tónlistarmyndband við lag sem er samið út frá verki eftir Kjarval

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þriðja myndband Jóhönnu Elísu.
Þriðja myndband Jóhönnu Elísu.

Á dögunum gaf tónlistarkonan Jóhanna Elísa út lagið Queen of Winter sem er fyrsta lag af væntanlegri plötu samin út frá málverkum.

Jóhanna hefur verið dugleg að koma fram með hljómsveit sinni sem er heldur óhefðbundin, en hún inniheldur strengjakvartett. Tónlist Jóhönnu dansar á milli popp - og klassískrar tónlistar og hefur sinn eigin sérstæða hljóm.

Þetta er þriðja tónlistarmyndband Jóhönnu Elísu og er lagið er samið út frá Kjarvalsmálverki og fjallar um vetrardrottningu sem svífur yfir landið og gefur því vetrarbúning.

Myndbandið er spennandi og skemmtileg saga um þrjár verur, haustið, veturinn og sólina og endurspeglar stigmagnandi atburðarás lagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.