Lífið

Stjörnulífið: Beið í 37 ár eftir fullkomnum afmælisdegi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Manuela Ósk hélt upp á 37 ára afmæli sitt. 
Manuela Ósk hélt upp á 37 ára afmæli sitt. 

 Stjörnulífið er liður á Vísi en þar verður farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga og jafnvel deila því með fylgjendum sínum.

Hafþór Júlíus Björnsson heldur áfram að skafa af sér kílóin en framundan er boxbardagi við Eddie Hall á næsta ári.

Bergsteinn Sigurðsson, umsjónarmaður Menningarinnar á RÚV, og Sveinn Guðmarsson, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, skelltu sér á Leggjarbrót um helgina í góðum hópi fólks.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri er spenntur fyrir Jazzhátíð í borginni sem sett var í þrítugasta skipti á föstudaginn. 

Hafdís Jónsdóttir, betur þekkt sem Dísa í World Class, birti myndir frá framkvæmdum við væntanlega stöð í Vatnsmýri.

Svala Björgvins birti þessa rándýru mynd af sér og nýja kærastanum Kristjáni Einari Sigurbjörnssyni. Falleg uppstilling.

 Manuela Ósk hélt uppá 37 ára afmælisdaginn með kærastanum sínum Eiði Birgissyni.

Annie Mist opinberaði nafnið á dóttur sinni sem kom í heiminn fyrir nokkrum vikum. Stúlkan heitir Freyja Mist Ægidius Frederiksdóttir. 

 Leikkonan Kristín Pétursdóttir naut sín í Bláa Lóninu á dögunum. 

Birgitta Líf sveitt í ræktinni á laugardegi eins og hún orðar sjálf. 

 Tanja Ýr og Egill Halldórsson sýna frá ferðalagalífi þeirra. 

 Valdimar Guðmundsson skellti sér í fyrstu veiðiferðina í mörg ár. 

Samfélagsmiðlastjarnan Binni Löve er greinilega mjög rómantískur.

Stjörnulögmaðurinn Vilhjálmur Hans er aftur mættur til Napolí þar sem hann elskar að vera.  Hann skellti sér í morgungöngu.

Ísdrottningin sjálf Ásdís Rán skellti sér í göngu í Búdapest. 

Kristbjörg Jónasdóttir og Aron Einar Gunnarsson eiga von á sínu þriðja barni og birti hún fallegar óléttumyndir á dögunum. 

Sumarið að klárast hjá Sunnevu Einars. 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.