„Konurnar í kringum mig veittu mér innblástur og ég hugsaði mikið til þeirra í ferlinu. Annars kom þetta svolítið til mín, ég er mjög ákveðin þegar kemur að skóm og hef sterkar skoðanir á því hvernig ég vil hafa hvert smáatriði,“ segir Andrea Röfn Jónasdóttir sem hannaði sína fyrstu skólínu í samstarfi við danska skómerkið JoDis.

Skólínan samanstendur af tíu stílum og byrjaði hönnunarferlið í byrjun árs 2019 að sögn Andreu.
„Þegar samstarfið byrjaði var ég kasólétt af dóttur minni. Ferlið hélt svo áfram eftir fæðingu og ég tók dóttur mína með mér á flest alla fundina. Línan var svo tilbúin í byrjun þessa árs og fór hún í sölu í dag, 1. september.“

Andrea Röfn hefur verið áberandi í tískuheiminum síðustu ár, bæði sem fyrirsæta og sem starfsmaður í tískuvöruverslunum, en þetta er í fyrsta skipti sem hún sjálf tekur þátt í hönnunarferli sem þessu.
„Á bak við merkið JoDis eru miklir reynsluboltar í skóbransanum sem gáfu mér mikið frelsi við hönnunina og framkvæmdu hverja einustu hugmynd sem ég fékk í kollinn. JoDis teymið kom svo með fullt af hugmyndum sem ég síðan lagaði eftir mínu höfði þangað til ég varð 100% ánægð.“
Nefndi skóna í höfuð kvenna í lífi sínu
Stílarnir bera allir nöfn íslenskra kvenna og segist Andrea hafa nefnt stílana í höfuðið á konum úr lífi sínu.
„Skórnir eru nefndir í höfuðið á mikilvægum konum í mínu lífi. Dóttur minni, mömmu, ömmum mínum, tengdamömmu, frænkum og bestu vinkonu. Ég er umkringd fullt af góðum og yndislegum konum sem veita mér innblástur í lífinu og held ég þurfi hreinlega að gera aðra línu til að enn fleiri þeirra fái skó nefnda í höfuðið á sér!“

Skólínan er fáanleg í versluninni Kaupfélaginu og í vefbúðinni skor.is en segir Andrea nokkra stíla nú þegar vera uppselda eftir aðeins einn dag í sölu.
„Ég tek með mér ómetanlega reynslu úr þessu ferli sem hefur opnað nýja vídd hjá mér. JoDis teymið eru frábær og bestu mentorar sem ég gæti mögulega verið með. Núna langar mig ennþá lengra með þetta og hlakka til að sjá hvert þetta leiðir mig.“