Lífið

Vill ekki sjá ananas á pítsu, ætlaði að verða sprengju­sér­fræðingur og hatar drauma

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sigmundur léttur á skemmtilegur í spjallinu.
Sigmundur léttur á skemmtilegur í spjallinu.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins tók þátt í dagskráliðnum Yfirheyrslan í Brennslunni á FM957 í vikunni.

Þar svaraði hann fullt af spurningum og kom þar meðal annars í ljós að versta áleggið á pítsu að hans mati væri ananas, sem barn ætlaði hann sér að verða slökkviliðsmaður eða sprengisérfræðingur.

Sigmundur er verstur í því að ryksuga þegar kemur að heimilisverkunum en eiginkonan hans myndi líklega segja að hann væri verstur í öllu.

Draumar fara í taugarnar á Sigmundi og hann hrýtur töluvert. Það hefur minnkað töluvert eftir að hann tók af sér nokkur kíló. 

Hér að neðan má sjá samtalið við Sigmund.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.