„Við birtum auglýsingu inn á Alfreð þar sem við óskuðum eftir fólki til að prófa fyrir okkur kynlífstæki og á innan við sólahring frá því hún var birt voru komnar ríflega 500 umsóknir,“ segir Saga LIuvia Sigurðardóttir annar eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Losta.is
„Það kom okkur svo sannarlega á óvart hversu ótrúlega margir höfðu áhuga á starfinu en við auglýstum eftir einstaklingi til að prófa fyrir okkur kynlífstæki.“
Vegna fjölda umsókna ákváðu Saga og Eva Brá að breyta fyrirkomulaginu sem þær lögðu upp með í fyrstu og úr varð að fá til liðs við sig lítinn hóp af fólki til að prófa tækin í stað eins einstaklings.
„Það er ótrúlega gaman að sjá hversu margir eru opnir fyrir umræðunni og til í að deila með okkur reynslu sinni af tækjunum og því er gott að hafa fleiri en einn einstakling til að prófa tækin því að þau eru mjög fjölbreytt og ólík.“

Losti.is opnaði á dögunum nýja búð í Borgartúni en hingað til hafa vörurnar eingöngu verið til sölu á netinu. Verslunin er í eigu Evu Bráar Önnudóttur og Sögu Lluviu Sigurðardóttur.
Kynsetur og stærsta kynlífsbókasafns landsins
„Þetta er reyndar ekki bara kynlífstækjaverslun heldur deilum við rýminu með Siggu Dögg kynfræðingi og munum við veita fólki greiðan aðgang að því að fylgjast með því í hverju og hvernig kynfræðingar starfa. Sigga Dögg er einnig stoltur eigandi stærsta kynlífsbókasafns Íslands sem aðgengilegt verður í rýminu fyrir áhugasama. Fólki er því velkomið að koma í kaffi og glugga í fræðandi bækur.“
Saga segir að það megi í raun kalla aðstöðuna í Borgartúni kynsetur þar sem aðstaðan bjóði upp á svo miklu meira en bara sölu á kynlífstækjum.
„Allt sem tengist málaflokknum kynlífi mun fá að blómsta á þessum stað. Ásamt því að bjóða upp á úrval kynlífstækja þá verðum við einnig með námskeið, vísindaferðir og ýmsar kynningar fyrir til dæmis steggjanir, gæsanir og saumaklúbba.
Að lokum segir Saga að annað fagfólk muni einnig hafa aðgang að aðstöðunni og rýmið sé sérstaklega hannað fyrir viðburði tengda kynlífi og fræðslu.
